Bæjarráð Hornafjarðar
715. fundur
27. mars 2015
kl.
08:30
-
10:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Staða sveitarsjóðs 2015
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs sem er í samræmi við fjárhagsáætlun.
2.
Ársreikningur sveitarfélagsins 2014
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Sigurjón Örn Arnarson og Magnús Jónsson endurskoðendur sveitarfélagsins frá KPMG fóru yfir ársreikningi 2014 og drög að skýrslu endurskoðenda.
Bæjarráð vísar ársreikningi 2014 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar ársreikningi 2014 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2015
Ný gjaldskrá Hornafjarðarhafnar lög fram, hafnarstjórn samþykkti hana á fundi sínum þann 12. mars.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Umsögn um útgáfu leyfa Martölvan ehf
Óskað er eftir umsókn um rekstrarleyfi vegna gististaðar í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins. Í ljósi gildistöku á nýju aðalskipulagi á næstunni verður þetta húsnæði í landnýtingarflokknum "Miðsvæði" og rúmast starfsemin því innan skipulags.

5.
Umsögn um útgáfu leyfa Hraunhóll 4
Óskað er eftir umsögn vegna breytingar á leyfi gististaðar í flokki I.
Bæjarráð geri ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
Bæjarráð geri ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Álaleira 14
Óskað er eftir umsögn um útgáfu leyfis í gististaðar í flokki I.
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn vegna þess að umsækjandi er ekki skráður með lögheimili að Álaleiru 14.
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn vegna þess að umsækjandi er ekki skráður með lögheimili að Álaleiru 14.
7.
Humarhátíð 2015
Bæjarráð auglýsti eftir áhugasömum félagasamtökum til að halda utan um Humarhátíð 2015, enginn sótti um.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
8.
Starfsmannamál
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöður úr viðtölum við umsækjendur.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
9.
Þjóðlenda við Fjallsárlón
Bæjarstjóri kynnti drög að auglýsingu um nýtingarleyfi Fjallsárlóns.
Bæjarstjóra falið að ganga frá auglýsingunni.
Bæjarstjóra falið að ganga frá auglýsingunni.
10.
Umsókn um tækifærisleyfi páskaball
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspunir bárust.