Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

716. fundur
13. apríl 2015 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 4
Málsnúmer 1503014F
Ásgerður benti á að ráðgjafar SASS geti aðstoðað umsækjendur við gerð umsókna svo þær uppfylli kröfur atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 173
Málsnúmer 1503016F
Fundargerð samþykkt.
3.
Skipulagsnefnd - 3
Málsnúmer 1503017F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir fundargerðum skipulagsnefndar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Skipulagsnefnd - 4
Málsnúmer 1503013F
Bæjarráð óskar eftir áliti umhverfisnefndar á 4. lið í fundargerðinni á Leið litla landvarðarinns.
Fundargerð samþykkt.
5.
Sindrabær Endurbætur 2015
Málsnúmer 201503061
Björn Imsland umsjónamaður fasteigna fór yfir hönnunarvinnu við Sindrabæ.
6.
Starfsmannamál
Málsnúmer 201502022
Björn Ingi greindi frá að umsóknarferli vegna auglýstra starfa fjármálastjóra og atvinnu- og ferðamálafulltrúa er lokið.

Sex sóttu um starf fármálastjóra.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir BSc viðskiptafræð.
Eygló Kristjánsdóttir, Bsc viðskiptafræði.
Guðrún Ingólfsdóttir, Ba hagfræði.
Kristinn Tómasson, MBA.
Mæva Marlene Urbschat, Ms þjóðhagfræði.
Einn umsækjandi óskaði eftir nafnleynd.

Atvinnu og ferðamálafulltrúi
Björn Sigurður Lárusson MSc almannatengs og verkefnastjórnun.
Árdís Erna Halldórsdóttir MSc í ferðamálafræðum.
Linda Björk Hallgrímsdóttir Msc umhverfis-og auðlindafræði.
Jenný Björgvinsdóttir Bs ferðamálafræði.
Kristinn Jóhann Níelsson Ma hagnýt menningarmiðlun.
Jóhann Lepalt Ágústsson nemi í ferðamálafræði.
Jóhanna Skrzypkowska bs ferðamálafræði.

Bæjarráð samþykkir að ráða:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóra og Árdísi Halldórsdóttur atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
Bæjarráð óskar þeim til hamingju og velfarnaðar í störfum hjá sveitarfélaginu.
7.
Álaleira/Mjólkurstöð
Málsnúmer 201411018
Björn Ingi greindi frá stöðu geymslumála Hornafjarðarsafna.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
8.
Jökladagar - hlaup
Málsnúmer 201501101
Erindi frá Vox Nature þar sem óskað er eftir áliti á að halda Calebrating Glacier Iceland hátíð 12.-15. maí 2016.
Bæjarráð tekur jákvætt í fyrirætlanir Vox Nature og hvetur til vandaðs undirbúnings í samvinnu við hlutaeigandi aðila í sveitarfélaginu.
9.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408001
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
10.
Möguleikar til reksturs gistiheimilis
Málsnúmer 201503083
Erindi frá Marín Magnúsdóttur um breytingu á húsnæði lagt fram, dags. 27. mars 2015.
Garðsbrún 6 er á íbúðarsvæði og er ekki heimilt að reka gistiþjónustu í flokki II á því svæði.
11.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi, Dalbraut 4
Málsnúmer 201504018
Erindi frá Vigfúsi Ásbjörnssyni og Fjólu Hrafnkelsdóttur þar sem óskað er eftir breytingu á aðalaskipulagi dags. 10.apríl lagt fram.
Vísað til skipulagsnefndar.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Fiskhóll 11
Málsnúmer 201504022
Erindi frá Sýslumanni um umsögn á leyfi til heimagistingar dags. 10. apríl lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa Fiskhóll 11
Málsnúmer 201504023
Erindi frá Sýslumanni um umsögn á leyfi til heimagistingar dags. 10. apríl lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa Hafnarbraut 3 Brimsker ehf
Málsnúmer 201503089
Erindi frá Sýslumanni um umsögn á leyfi til heimagistingar dags. 30. mars lagt fram.
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"

15.
Ráðgjafafyrirtæki upplýsingar um þjónustu við sveitarfélög
Málsnúmer 201504011
Lagt fram til kynningar.
16.
Humarhátíð 2015
Málsnúmer 201503011
Samningur við Knattspyrnudeild UMF Sindra lagður fram.