Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

718. fundur
27. apríl 2015 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 5
Málsnúmer 1504007F
Ásgerður spurði um hvenær eigi að halda Matvæladag. Stefnt er að því að halda hann í byrjun júní.
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 6
Málsnúmer 1504006F
Vala gerði grein fyrir hugmyndum um framtíð Miklagarðs.
Fundargerð samþykkt.
3.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2015
Málsnúmer 201504050
Ásta gerði grein fyrir fyrstu drögum að viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2015.
4.
Úthlutun á nýtingarleyfi við Fjallsárlón
Málsnúmer 201504040
Leyfi til nýtingar á landsvæði við Fjallsárlón var auglýst 27. mars - 20. apríl. Um er að ræða leyfi til nýtingar í þjóðlendu með gildistíma frá 1. maí 2015 til 1. maí 2027 með möguleika á framlengingu til 1. maí 2033.
Leyfi til nýtingar er veitt á grundvelli 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta og reglna Sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun leyfa til nýtingar í þjóðlendum.
Tvær umsóknir bárust, frá Fjallsárlóni ehf. og Ferðaþjónustu Fjallsárlón ehf.
Ferðaþjónustan Fjallsárlón ehf. uppfyllir ekki 2. tl. 6. gr., Reglna um úthlutun leyfa til nýtingar í þjóðlendum, bæjarráð getur því ekki tekið umsóknina til efnislegrar meðferðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Fjallsárlón ehf.
5.
Sóknaráætlun 2015 til 2019 samráðshópur
Málsnúmer 201504046
Erindi frá SASS lagt fram, beiðni um ábendingu fjóra einstaklinga í samráðshóp um sóknaráætlun.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Sjómannadagurinn 2015
Málsnúmer 201504045
Erindi lagt fram frá sýslumanninum á Suðurlandi beiðni um umsögn vegna tækifærisleyfi fyrir Sjómannadagsráð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa Karlakórinn Jökull
Málsnúmer 201504054
Erindi lagt fram frá sýslumanninum á Suðurlandi beiðni um umsögn um tækifærisleyfi fyrir Karlakórinn Jökul.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa Lónið ehf
Málsnúmer 201504053
Erindi lagt fram frá sýslumanninum á Suðurlandi beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfi fyrir Lónið ehf. til að fá að reka gististað í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
9.
Frumvarp til laga 691 mál Makríl
Málsnúmer 201504055
Lagt fram.
10.
Frumvarp til laga 692 mál aflagjöld
Málsnúmer 201504056
Lagt fram.
11.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2015
Málsnúmer 201504044
Fundargerð lögð fram.
12.
Fundargerðir Nýheima 2015
Málsnúmer 201502098
Lagt fram.