Bæjarráð Hornafjarðar
720. fundur
11. maí 2015
kl.
16:00
-
17:47
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 4
Ellert fór yfir fundargerðina, umræður um Skógeyjarsvæðið sem er í ofbeit.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 5
Rúnar fór yfir fundargerðina. Umræður um lausar lóðir.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 175
Kristján spurði um stöðu mála við Hornafjarðarós, vísað í 13. lið fundargerðarinnar.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2015
Ásta fór yfir viðauka 1 helstu breytingar sem gerðar hafa verið.
Bæjarráð vísar viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2015 til bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2015 til bæjarstjórnar.
5.
Staða sveitarsjóðs 2015
Ásta fór yfir stöðu sveitarsjóðs sem er í samræmi við fjárhagsáætlun.
6.
Breytt vinnulag við úthlutanir fjármuna til landshlutanna
Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.
7.
Ósk um niðurfellingu á fasteignargjöldum
Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld fyrir árið 2015.
8.
Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Starfsmönnum falið að ganga frá starfsmannastefnunni.
9.
Umsókn um lóð, Hafnarbraut 6
Erindi lagt fram frá Humarhöfninni ehf. ósk um lóð.
Bæjarráð samþykkir að úthluta umsækjanda lóðinni.
Bæjarráð samþykkir að úthluta umsækjanda lóðinni.
10.
Frumvarp til laga skipulags-og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar gerir þá skýlausu kröfu um að innanlandsflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Engu að síður gerir bæjarráð athugasemd við það að sett verði lög sem færir skipulagsvaldið frá sveitarfélögum til ríkisins.
11.
Ársskýrsla HAUST 2014
Lögð fram til kynningar.
Bæjarráð vísar árskýrslunni til umhverfisnefndar.
Bæjarráð vísar árskýrslunni til umhverfisnefndar.
12.
Frumvarp til laga þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta
Í drögum að lagabreytingum er lagt til að náttúrumyndanir og vindorka séu felldar undir leyfisveitingarhlutverki ráðherra auk vatns- og jarðhitaréttinda, náma og jarðefna.
Bæjarráð telur að þessi breyting feli í sér tilfærslu á deiliskipulagsvald frá sveitarfélögum yfir til ríkisins. Mögulegt er að ná fram tilætluðum árangri með framsetningu stefnu og aukis samráðs um þessa þætti.

13.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Bæjarstjóri upplýsti um fund sem hann átti með Innanríkisráðherra á fimmtudag í síðust viku. Þar fór BIJ yfir alvarleik málsins og þá stöðu sem upp er komin. Ráðherra sagðist myndir funda með Hreini Haraldssyni forstjóra Vegagerðarinnar og Sigurði Á. Grétarssyni hjá siglingarsvið Vegagerðarinnar strax á mánudag semsagt í dag og fara yfir hvað mögulegt er að gera í stöðunni. Ekki var annað að skilja en ráðherra skildi mikilvægi þess að tryggja fjármuni til aðgerða nú þegar og einnig í rannsóknarverkefni tengdum Grynnslunum og innsiglingunni um Hornafjarðarós.
Bæjarráð tekur undir bókun Hafnarstjórnar frá fundi 5. maí þar sem þungum áhyggjum er líst á stöðu mála og ítrekar að nauðsynlegt er að tryggja fjármuni til úrbóta strax.
"Hafnarstjórn hefur þungar áhyggjur af því alvarlega ástandi sem skapast hefur á Grynnslum og í innsiglingu um Hornafjarðarós. Nú er komin upp sú staða að takmarka þarf djúpristu skipa sem sigla inn til Hafnar í Hornafirði. Dýpið á Grynnslunum hefur minnkað um 2 metra á undanförnum 5 mánuðum og eru þetta um 200.000 rúmmetrar sem safnast hafa upp á þessum tíma. Líkur eru á þetta ástand verði viðvarandi næstu mánuði. Hafnarstjórn bendir á að þetta ástand skapar mikla óvissu um skipaumferð um innsiglinguna. Hafnarstjórn telur mikilvægt að stjórnvöld tryggi fjármuni til samgönguyfirvalda svo gera megi úrbætur strax. Þetta ástand setur sjávarútveg og aðra flutninga til og frá Hornafirði í uppnám. Því er framtíð heils byggðarlags undir í þessu máli."

14.
ósk um tilnefningu fulltrúa í svæðisráð í Vatnajökulsþjóðgarði
Bæjarráð tilnefnir:
Björn Inga Jónsson, Þórhildi Ástu Magnúsdóttur og Hugrúnu Hörpu Reynisdóttur.
Björn Inga Jónsson, Þórhildi Ástu Magnúsdóttur og Hugrúnu Hörpu Reynisdóttur.
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar hafa borist.