Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

721. fundur
18. maí 2015 kl. 16:00 - 17:23
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Lönguhólar endurnýjun Þaksjárns og þakrenna
Málsnúmer 201505040
Björn Imsland greindi frá opnun útboða í þak á Lönguhólum, endurnýjun þakjárns og þakrenna. Þrjú tilboð bárust kostnaðaráætlun er 5.363.000 krónur. Bjartur í sumarhúsum ehf 53% yfir kostnaðaráætlun H.Christiansen ehf 12% yfir kostnaðaráætlun og Þingvað ehf 97% af kostnaðaráætlun. Gengið verður til samninga við Þingvað ehf. verklok eru áætluð fyrir lok sumarfrís í leikskólanum.
2.
Hornafjarðarsöfn - Mikligarður framtíðarsýn
Málsnúmer 201408053
Vala Garðardóttir mætti á fundinn og fór yfir framvindu málsins. Ýmsir möguleikar eru í stöðunni þegar kemur að fjármögnun verkefnisins. Ræddur áhugi mögulegra fjárfesta í uppbyggingu á Miklagarði og Jökulheimum.
3.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Málsnúmer 201412013
Útrunninn er umsóknarfrestur sem bæjarráð gaf í auglýsingu eftir áhugasömum aðilum til að taka Netaloftið í fóstur. Ein umsókn barst og uppfyllir hún öll skilyrði auglýsingar.
Bæjarstjóra falið að gera drög að samningi.
4.
Suðursveit efling byggðar, þjónusta og húsnæði
Málsnúmer 201505056
Erindi frá íbúum í Suðursveit um hvatningu til eflingar byggðar og þjónustu í sveitinni.
Bæjarráð vísar erindinu til meðferðar hjá fræðslu- og tómstundarnefnd til að fara yfir hvaða möguleikar eru til að koma til móts við óskir íbúa.
Bæjarstjóra falið að kanna útfærslu á leiguíbúðum í heimavistarhúsnæði að Hrollaugsstöðum.
5.
Umsókn um tækifærisleyfi fyrir Humarhátíð 26-28. júní 2015
Málsnúmer 201505052
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu tækifærisleyfis.
6.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað.
Málsnúmer 201505054
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
7.
Úthlutun á nýtingarleyfi við Fjallsárlón
Málsnúmer 201504040
Lögð fram drög að samningi um nýtingarleyfi við Fjallsárlón.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda drög á samningsaðila og forsætisráðuneytið með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
8.
Fundir bæjarráðs sumar 2015
Málsnúmer 201505043
Lagt fram fundarplan bæjarráðs og bæjarstjórnar fyrir sumarið 2015.
Bæjarráð samþykkir framlagt fundarplan.
9.
Umsókn um styrk vegna hátíðarhalda 19. júní, 100 ára kosningarafmæli íslenskra kvenna
Málsnúmer 201504077
Lögð fram kostnaðaráætlun frá undirbúningshóp vegna hátíðarhalda 19.júní, 100 ára kosningarafmæli.
Bæjarráð samþykkir að veita 500 þkr. styrk í verkefnið sem tekinn verður af risnu og ferðakostnaði bæjarstjórnar.
10.
Gott fordæmi fjárhagsáætlunargerð
Málsnúmer 201505053
Lagt fram til kynningar.