Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

722. fundur
26. maí 2015 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 5
Málsnúmer 1505002F
Ragnhildur gerði grein fyrir væntanlegum viðgerðum og breytingum á Vöruhúsi. Bæjarráð vísar til starfsmanna að vinna að frekari útfærlsu á framkvæmdinni.
Umræður um fundargerð Velferðarteymis varðandi Heilsueflandi samfélag, sem mun hafa mikil áhrif á alla ákvörðunartöku allra fastanefnda í sveitarfélaginu. Bæjarráð telur því mikilvægt áður en ákvörðun er tekin um innleiðingu á verkefninu að skoðun fastanefnda liggi fyrir. Nefndirnar greini hvaða áhrif verkefnið geti haft á viðkomandi málaflokka og hvað er nú þegar verið að vinna. Málinu er því vísað til allra fastanefnda til umfjöllunar.
Ragnhildur gerði grein fyrir nemendafjölda í Grunnskóla Hornafjarðar. Þar kemur fram að nemendum fækkar um 15 á milli skólaára. Nú er í gangi vinna við gerð vinnumats á grunni nýrra kjarasamninga KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Bæjarráð hvetur til þess að höfð verði til hliðsjónar nýsamþykkta jafnréttisstefnu sveitarfélagsins þar sem kveðið er á um launajafnrétti.
2.
Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201411006
Lagt fram til kynningar.
3.
Fundargerðir SASS 2015
Málsnúmer 201501065
Fundargerðir SASS lagðar fram til kynningar.
4.
Fjárhagsstaða og greiðslustöðvun Búmanna
Málsnúmer 201505060
Erindi frá Stjórn Búmanna dags. 15. maí 2015 lagt fram, þar sem tilkynnt er að félagið er í greiðslustöðvun og boðað er til fundar með kröfuhöfum þann 28. maí.
Bæjarráð hefur áhyggjur af fjárhagsstöðu Búmanna og framtíðar valmöguleikum eldriborgara til fjölbreytilegra búsetukosta.
5.
Eignarhald og rekstur slökkvibíls
Málsnúmer 201505057
Erindi frá Jörundi Ragnarssyni umdæmisstjóra svæðis IV dags. 17. maí lagt fram þar sem óskað er eftir að rekstur og eignarhald á slökkvibíl verði skoðaður.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Umsókn um lóð Kirkjubraut 9
Málsnúmer 201505071
Erindi lagt fram frá Snæfríði Hlín Svavarsdóttur dags. 20. maí 2015 þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að Kirkjubraut 9.
7.
Umsögn um breytingar á póstdreifingu nr.364/2003
Málsnúmer 201505072
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir mikilli óánægju með að drög að reglugerðarbreytingu heimili skerðingu á póstþjónustu í dreifbýli. Þar sem fjölbreytt atvinnustarfssemi er í dreifbýli og takmarkað fjarskiptasamband víða er ekki tímabært að heimila þessa skerðingu.
8.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir bárust.