Bæjarráð Hornafjarðar
723. fundur
1. júní 2015
kl.
16:00
-
18:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 6
Árdís fór yfir fundargerð atvinnumálanefndar, gerði grein fyrir vinnu við spurningakönnun vegna atvinnustefnu.
Umræður um gott atvinnuástand í sveitarfélaginu.
Greindi frá því að leggja eigi fyrir spurningakönnun, til að kanna áhuga fyrir notkun matarsmiðju á Höfn.
Umræður um gott atvinnuástand í sveitarfélaginu.
Greindi frá því að leggja eigi fyrir spurningakönnun, til að kanna áhuga fyrir notkun matarsmiðju á Höfn.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 5
Umræður um sumarafleysingar og skort á húsnæði fyrir starfsmenn.
Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarnefndar.
"Heilbrigðis- og öldurnarnefnd hvetur háttvirtan heilbrigðisráðherra til þess hefja undirbúning að viðbyggingu við hjúkrunarheimilið á Hornafirði hið fyrsta. Aðstaðan er langt undir þeim viðmiðum sem velferðarráðuneytið setur ásamt því að á Hornafirði er rúmlega helmingur allra tvíbýla á Suðurlandi. Einnig leggur nefndin áherslu á að þjónustusamningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði verði endurnýjaður áður en núverandi samningur rennur úr gildi."

3.
Menningarmálanefnd - 7
Vala kynnti ferli vegna samstarfs við KPMG um gerð viðskiptaáætlunar Miklagarðs.
Ásgerður gerði styrkúthlutanir að umtalsefni.
Vala upplýsti að í vinnu við nýja menningarstefnu sveitarfélagsins verður tekið á reglum um styrkúthlutanir.
Ásgerður gerði styrkúthlutanir að umtalsefni.
Vala upplýsti að í vinnu við nýja menningarstefnu sveitarfélagsins verður tekið á reglum um styrkúthlutanir.
4.
Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Starfsmannastefna sveitarfélagsins hefur verið í endurskoðun, helstu breytingar sem gerðar voru á henni eru; skerpt var á reglum um símenntun, brota í starfi og kafla um upplýsingamiðlun. Uppfærslu var breytt og allar reglur teknar út og gerður skýrari greinarmunur á stefnunni sjálfri. Verklagsreglur um áminningar í starfi og reglur um ráðningar starfsmanna voru felldar út.
Bæjarráð samþykkir starfsmannastefnuna og vísar henni til bæjarstjórnar.
5.
Fráveita á Höfn - útboð fyrsti áfangi
Verklýsing á fráveituframkvæmdum á Höfn lögð fram til kynningar.
Björgvin gerði grein fyrir verklýsingunni og útboðsgögnum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn en tekin út vinna við að koma fráveitulög í sjó þar sem framkvæmdatími þess verkþáttar er hagkvæmast að framvkæma að vori.
Bæjarráð felur starfsmönnum að bjóða verkið út.

6.
Deiliskipulag Dilknes / Hjarðarnes
Erindi lagt fram frá eigendum jarðanna Hjarðarnes og Dilksnes lagt fram, þar sem óskað er eftir afnotum af loftmynd sveitarfélagsins af svæðinu.
Bæjarráð getur ekki veitt afnot af loftmynd sveitarfélagsins skv. skilmálum seljanda loftmynda.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7.
Sindrabær Endurbætur 2015
Lovísa Rósa kom inn á fundinn og Páll Róbert vék af fundi kl. 17:30. Hönnunarsamningur við Glámu Kím lagður fram.
Björn Þór gerði grein fyrir verklýsingunni og útboðsgögnum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og felur starfsmönnum að bjóða verkið út.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og felur starfsmönnum að bjóða verkið út.
8.
Svæðisskipulag á Suðurlandi
Erindi frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga dags. 27. maí 2015 lagt fram. Óskað er eftir tilnefningu tveggja kjörinna fulltrúa frá hverju sveitarfélagin innan samtakanna til þáttöku á fundum um svæðisskipulag.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Björn Inga Jónsson og Ásgerði K. Gylfadóttur.
9.
Hækkun endurgreiðslu vegna Refaveiða 2014-2016
Erindi frá Umhverfisstofnun lagt fram til kynningar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að kanna með samstarf á milli sveitarfélaga.
10.
Lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga sölu félagslegra eignar-og leiguíbúða
Erindi frá Varasjóði húsnæðismála lagt fram.
Vísað til fjármálastjóra til að kanna stöðu á umsóknum í sjóðinn.
11.
Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnámi
Erindi frá Jöfnunarsjóði lagt fram.
12.
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn heimilisofbeldi. Lögreglan og sveitarfélagið
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarstjórnar.
13.
Fundargerðir Nýheima 2015
Lagt fram til kynningar.
14.
Prókúra fyrir fjármálastjóra
Prókúra fyrir fjármálastjóra sveitarstjóra lögð fram til undirritunar.