Bæjarráð Hornafjarðar
724. fundur
8. júní 2015
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólög Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 176
Fundargerð samþykkt.
2.
Samþykktir um gæludýrahald
Lögð fram drög frá HAUST um gæludýrasamþykktir.
Farið yfir drög að samþykktum. Í 9. grein, 14. málsgrein, kemur fram að óheimilt er að hafa hunda í opinberum stofnunum. Að mati bæjarráðs þarf að koma fram undanþága varðandi hjálparhunda. Í 16. málsgrein kemur fram að bannað er að fara með hunda á almennar útisamkomur. Bæjarráð felur starfsmönnum að afla upplýsinga um rökstuðning á þessu.
Samþykkt með framangreindum athugasemdum. Vísað til annarrar umræðu bæjarráðs.

3.
Gróðursetning í tilefni 35.ár eru frá því Vigdís Finnbogadóttir varð Forseti
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í tilefni af því að 35 ár eru liðin frá kosningu Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta Íslands. Um er að ræða samstarfsverkefni Skógræktarfélags Íslands og Skógræktarfélags A-Skaft með þátttöku sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir þátttökuna og felur Skógræktarfélagi A-Skaft að sjá um framkvæmdina.
Bæjarráð samþykkir þátttökuna og felur Skógræktarfélagi A-Skaft að sjá um framkvæmdina.
4.
Umsögn um útgáfu leyfa Hafnarbraut 21
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
5.
Ósk um víðbótarfjármagn vegna leiktækja og lóðar Krakkakoti
Bæjarráð samþykkir að veita 3 mkr. í leiktæki fyrir Krakkakot. Val á tækjum, staðsetning og frágangur verði unnin í samvinnu við umsjónarmann fasteigna. Fjármunirnir verða teknir af leiksvæðum.
6.
Styrkur til kaupa á Píanói
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina en vill skoða aðkomu á síðari stigum málsins.
7.
Tillaga um nýtt örnefni við Mosárjökul - Ivestindur
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar hjá örnafnanefnd.
8.
Fundargerðir Nýheima 2015
Fundargerð nr. 50 lögð fram til kynningar.
9.
Aðalfundur Háskólafélagsins 2015
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2015
Fundargerð lögð fram til kynningar.