Bæjarráð Hornafjarðar
727. fundur
20. júlí 2015
kl.
13:30
-
15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 177
Ásgerður spurði hvort búið væri að ná samningum um kostnað vegna innsiglingarinnar, Björn Ingi greindi frá að verið sé að ljúka við samningana.
2.
Ársreikningur HSSA
Ársreikningurinn hefur verið staðfestur og undirritaður af heilbrigðis-og öldrunarnefnd.
Niðurstaða rekstrar 2014 er jákvæð um 2.527 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Framlagður ársreikningur samþykktur samhljóða.
Niðurstaða rekstrar 2014 er jákvæð um 2.527 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Framlagður ársreikningur samþykktur samhljóða.
3.
Staða sveitarsjóðs 2015
Ólöf gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs sem er í samræmi við fjárhagsáætlun.
4.
Breyting á aðalskipulagi, Hof Öræfum
Tillaga vegna breytingar á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 Hofi Öræfum liggur fyrir.
Lýsingin var í kynningu frá 10.-25. júní, engar athugasemdir bárust.
Markmið með breytingunni eru:
Stækka a.vinnusvæði, um 9 ha. svæði fyrir verslun og þjónustu. Umrætt svæði er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi.
Gert er ráð fyrir að afmarka íbúðarsvæði norðan Hringvegar ofan við félagsheimilið Hofgarð, um 5,5 ha. að stærð.
Breytingartillagan er ekki matsskyld og því ekki háð lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Hins vegar verður gerð almenn grein fyrir helstu umhverfisáhrifum breytingartillögu á umhverfið í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og vísar henni í lögformlegt ferli.

5.
Árnanes 5. Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 28. maí - 09. júlí. Engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar henni í lögformlegt ferli skv.30. og 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar henni í lögformlegt ferli skv.30. og 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6.
Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging. Hvannabraut 4
Grendarkynning hefur farið fram engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir grendarkynninguna.
Bæjarráð samþykkir grendarkynninguna.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað Vatnajökulsþjóðgarður
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa Hæðagarður 7
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
9.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2015
Lögð fram til kynningar.
10.
Starfsmannamál
Björn Ingi fór yfir stöðu mála.