Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

728. fundur
9. ágúst 2015 kl. 16:00 - 16:22
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um heimild til skipulags Skaftafelli III og IV
Málsnúmer 201507018
Erindi frá Stefáni Benediktssyni dags. 8. júlí þar sem óskað er eftir heimild til að skipuleggja landsvæði við heimreiðina í Skaftafell.
Umrætt landsvæði er á aðalskipulagi 2012-2030 merkt sem landbúnaðarsvæði og er því þörf á breytingu á aðalskipulagi.
Vísað til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
2.
Ósk um samstarf frá sveitarfélaginu Harku í Eistlandi
Málsnúmer 201403026
Erindi frá sveitarfélaginu Harku Eistlandi þar sem tilkynnt er að þau munu koma til Hafnar dagana 6-10 október í "Studdy- Visit" sem er styrkt af Nordic-Baltic Mobility Programme for Public Administration.
Bæjarráð fagnar tilvonandi heimsókn og felur starfsmönnum að undirbúa og skipuleggja.
3.
Framkvæmdir við Náttúrustíg árið 2015
Málsnúmer 201409081
Erinidi frá Náttúrustofu Suðausturlands dags. 6. ágúst þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp Steinagarð við göngustíginn sem liggur frá Óslandi að Silfurnesi.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-og skipulagsnefndar.
4.
Umsókn um lóð
Málsnúmer 201507042
Erindi frá Geir Þorsteinssyni dgs. 21.07 umsókn um lóð að Hagatúni 16.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni en vísar í reglur um úthlutun lóða þar sem kveðið er á um að framkvæmdir skulu hefjast innan níu mánuða frá úthlutun. Eftir þann tíma fellur lóðaúthlutun úr gildi.
5.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málsnúmer 201010059
Frestað þar sem gögn hafa ekki borist.
6.
Fundargerðir SASS 2015
Málsnúmer 201501065
Lagt fram til kynningar.