Bæjarráð Hornafjarðar
729. fundur
17. ágúst 2015
kl.
16:00
-
17:23
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 6
Starfsmaður umhverfisnefndar, Bryndís Bjarnarson, fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umsókn um framlengingu á stöðuleyfi Horni
Erindi dags. 10. júlí frá Ómari Antonssyni um framlengingu á stöðuleyfi fyrir salerni og kaffistofu á Horni um eitt ár lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlengingu stöðuleyfis til 1. maí 2016 og hvetur umsækjanda til að skila inn gögnum og sækja um byggingarleyfi.
3.
Umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis
Erindi dags. 5. ágúst frá Sýslumanni á Suðurlandi, umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Sigurð Ólafsson, Stafafelli.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun leyfisins.
4.
Endurbætur í Vöruhúsi
Farið yfir stöðu mála. Málið í vinnslu hjá starfsmönnum. Ekki er þörf á frekari fjárveitingum að svo stöddu.
5.
Gjaldskrá Vöruhúss 2015
Gjaldskrá Vöruhúss og Fablab hefur fengið umfjöllun í fræðslunefnd.
Bæjarráð samþykkir gjaldskránna og felur starfsmönnum að setja hana fram eins og aðrar gjaldskrár sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir gjaldskránna og felur starfsmönnum að setja hana fram eins og aðrar gjaldskrár sveitarfélagsins.
6.
Tölvu og fjarskiptamál sveitarfélagsins
Farið yfir gildandi samninga vegna tölvu- og fjarskiptamála. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um reynslu af samningnum. Til umræðu kom að framkvæma öryggisúttekt á tölvukerfi sveitarfélagsins og vistun gagna.
7.
Úthlutun á nýtingarleyfi við Fjallsárlón
Nýtingasamningur við Fjallsárlón lagður fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir SASS 2015
Lagt fram til kynningar.
9.
Innflutningsbann Rússa á matvælum frá Íslandi
Bæjarráð fjallaði um þá stöðu sem upp er komin vegna innflutingsbanns á matvælum til Rússlands.
Ljóst er að þetta bann getur haft víðtæk áhrif á efnahag þjóðarinnar því er mikilvægt að vinna að lausn á útflutningi og sölu sjávarafurða frá Íslandi. Sjávarútvegur er stór atvinnugrein í Sveitarfélaginu Hornafirði og því getur innflutningsbann Rússa haft áhrif á íbúa innan sveitarfélagsins og bæjarráð mun fylgjast með framvindu mála.