Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

730. fundur
24. ágúst 2015 kl. 16:00 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sæmundur Helgason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 178
Málsnúmer 1508003F
Björn Ingi fór yfir fundargerð hafnarstjórnar.

Ásgerður spurði um stöðu mála vegna viðhaldsdýpkunar. Lovísa vék af fundi undir þessum lið. Björn Ingi greindi frá stöðu mála. Mun hann eiga fund með forsvarsmönnum Trölla næstkomandi miðvikudag.

Ásgerður spurði um lið 2 í fundargerð. Björn Ingi upplýsti um að reikningur hafi borist frá Björgun og er hann kominn í greiðsluferli. Gert er ráð fyrir að ríkið endurgreiði kostnað hafnarinnar.

Ásgerður spurði um starfsmannamál hafnarinnar undir 7. lið fundargerðar. Björn Ingi greindi frá stöðu mála og fór nánar yfir tillögu hafnarstjórnar í þeim efnum.

Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 7
Málsnúmer 1507001F
Ragnhildur fór yfir fundargerð fræðslunefndar.

Undanfarin ár hefur reglulega komið upp umræða og ágreiningur um skiptingu árganga leikskólabarna í tvö hús. Ákvörðun um sameiningu leikskólanna undir einu þaki byggir m.a. á rekstrarúttekt KPMG 2015 og niðurstöðu viðhorfskönnunar Félagsvísindastofnunar HÍ þar sem afgerandi meirihluti er fyrir sameiningu leikskólanna undir einu þaki.
Leiðarljós við sameiningu er að:
-
Búa börnum bestu mögulegu uppeldisaðstæður í húsakosti miðað við lög, reglur og kröfur dagsins í dag.
-
Skapa starfsfólki góðar starfsaðstæður við uppeldi og kennslu ungra barna.

Drög að aðgerðaráætlun sem lögð voru fram á fundi fræðslu- og tómstundanefndar voru hugsuð sem upphaf umræðu um í hvaða ferli málið gæti farið. Bæjarráð harmar þau áhrif sem tímasetningar og orðalag í drögunum hefur haft á líðan starfsmanna. Meirihluti bæjarráðs biðst velvirðingar á þeim, það er markmið og einlægur ásetningur meirihlutans að vinna að sameiningarferlinu í samvinnu við starfsfólk leikskólanna. Meirihlutinn vonar að starfsfólk leikskólanna sé tilbúið til þess að taka þátt í sameiningarferlinu þrátt fyrir þessa hrösun nú í byrjun.

Ásgerður ítrekar ósk sína frá síðasta bæjarstjórnarfundi um að fulltrúar Framsóknarflokksins fái aðkomu að vinnunni. Sæmundur spurði um með hvaða hætti hægt sé að tryggja meiri aðkomu fulltrúa Framsóknarflokksins að málinu öðru vísi en í gegnum nefnd, bæjarráð og bæjarstjórn? Ásgerður bendir á að niðurlag bókunar Fræðslu- og tómstundarnefndar bendi ekki á neina aðkomu að lokaskjali.
Bæjarstjóri fór yfir næstu skref og að það hafi staðið til að stofna stýrihóp til að tryggja aðkomu aðila. Við skoðun á hvernig önnur sveitarfélög hafa unnið þetta mál hefur verið stofnaður slíkur hópur til að leiða málin en mikilvægt að klára aðgerðaráætlun áður en hann yrði stofnaður.
Bæjarráð beinir þeim tilmælum til fræðslu- og tómstundarnefndar að gögn sem tengjast þessu máli verði lögð fram sem drög til efnislegrar umræðu.

Sæmundur tók til máls undir fjórða lið fundargerðarinnar. Benti hann á að engin gögn eru frá nokkrum aðildarfélögum USÚ, m.a. Golklúbbi, Hestamannafélagi og Akstursíþróttafélagi. Ásgerður tók undir með Sæmundi og saknar gagna frá Akstursíþróttafélaginu og greindi frá áhyggjum af aðstöðu fimleikadeildarinnar þar sem þörf er á uppbyggingu sem er plássfrek og kostnaðarsöm. Ásgerður tekur undir með fulltrúum framsóknar sem lögðu til að gerð verði skoðanakönnun um uppbyggingu á íþróttamannvirkjum.

Fundargerð samþykkt.
3.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Málsnúmer 201003048
Jón Kristján gerði grein fyrir stöðu mála.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði tímabundinn samningur fyrir sjöunda íbúa sbr. 6. grein samningsins.
4.
Svæðisskipulag Suðurlands skoðun
Málsnúmer 201508022
Lagt fram til kynningar.
5.
Skólaakstur í Öræfum skólaárið 2015 - 2016
Málsnúmer 201508028
Ragnhildur gerði grein fyrir stöðunni. Ekki hafa fengist aðilar í verkefnið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við foreldra barna í Öræfum um akstur til og frá skóla skólaárið 2015-2016.