Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

731. fundur
31. ágúst 2015 kl. 16:00 - 16:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 7
Málsnúmer 1508005F
Matthildur gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnumálanefnd - 8
Málsnúmer 1507004F
Árdís gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 8
Málsnúmer 1508007F
Ragnhildur gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
4.
Umsókn um nýjan lóðaleigusamning og heimild til skipulagsgerðar í Hafnarnesi
Málsnúmer 201508043
Erindi frá Árnínu H. Guðjónsdóttur dags. 26. ágúst 2015 lagt fram. Óskað er eftir leyfi til að deiliskipuleggja og breyta lóðarleigusamningi að Hafnarnesi.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.
5.
umsókn um styrk - Flugsaga Austurlands áfangaskýsla og styrkbeiðni
Málsnúmer 201508038
Erindi dags. 22. ágúst 2015 frá Benedikt V. Warén, þar sem sótt er um styrk til ritunar á flugsögu Austurlands.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 35 þ.kr.
6.
Kvörtun vegna dýrahalds
Málsnúmer 201508025
Erindi dags. 19. ágúst 2015 frá Sigurrósu R. Guðmundsdóttur þar sem bent er á að fjölgun heimilsdýra hefur í för með sér slæma umgengni og hirðingu eigenda þeirra.
Bæjarráð felur starfsmönnum að koma samþykkt um hunda- og kattahald í kynningu. Jafnframt hvetur bæjarráð dýraeigendur í sveitarfélaginu að hirða upp eftir dýrin sín.
7.
Fundargerðir Nýheima 2015
Málsnúmer 201502098
Lagt fram til kynningar.
8.
Möguleg móttaka flóttafólks
Málsnúmer 201509001
Bæjarráð felur félagsmálastjóra að kanna möguleika á því að sveitarfélagið taki á móti flóttafólki.