Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

733. fundur
14. september 2015 kl. 17:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 264
Málsnúmer 1509003F
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 8
Málsnúmer 1509004F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 179
Málsnúmer 1509005F
Ásgerður spurði út í afgreiðslu hafnarstjórnar vegna athugasemdar sem fram kom á bæjarstjórnarfundi nr. 218 deiliskipulag höfnin/Ósland. Björn Ingi vísaði í bókun hafnarstjórnar þar sem fram kemur að ekki þurfi að breyta skipulaginu. Einnig rætt um liði 4 og 5 þar sem fram kom að málið er í ferli. Einnig rætt um uppsetningu vindmyllu og sólarsellu á Austurfjörum.

Fundargerð samþykkt.
4.
Forsendur fjárhagsáætlunar 2016
Málsnúmer 201509015
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri fór yfir drög að forsendum fjárhagsáætlunar 2016. Mikil óvissa er framundan í þessum efnum.
5.
Siðarreglur starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201509040
Vísað til bæjarstjórnar.
6.
Ráðning Skipulagsstjóra
Málsnúmer 201509019
Björn Ingi greindi frá umsóknarferli skipulagsstjóra kom fram að fjórir sóttu um stöðuna. Bæjarstjóra falið að svara umsóknum.
7.
Öldrunarráð
Málsnúmer 201509045
Bæjarráð leggur til að stofnað verði Öldrunarráð, skipað 5 einstaklingum. Þrír tilnefndir af bæjarstjórn og tveir tilnefndir af Félagi eldri Hornfirðinga. Starfsmaður öldrunarráðs verði Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri. Starfsmanni falið að semja drög að erindisbréfi/samþykkt öldrunarráðs og upplýsa formann Félags eldri Hornfirðinga.
8.
Þátttaka í þáttaröð "Um Suðurland"
Málsnúmer 201412043
Sveitarfélaginu boðið að taka þátt í 6 þátta röð um Suðurland. Bæjarráð samþykir þátttöku að andvirði 250 þkr.án vsk. Tekið af auglýsinga- og kynningamálum í fjárhagsáætlun 2015.
9.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016
Málsnúmer 201509024
Lagt fram og bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
10.
Fundir sveitarstjóra með fjálaganefnd Alþingis haustið 2015
Málsnúmer 201509044
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að óska eftir fjarfundi.
11.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 201509043
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
12.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408001
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur undanfarin ár lagt sitt að mörkum til að uppbygging geti átt sér stað við Jökulsárlón. Meðal annars með gerð deiliskipulags af svæðinu. Ekki hefur verið unnt að gefa út framkvæmdarleyfi samkvæmt gildandi deiliskipulagi þar sem eignarhald jarðarinnar er í formi sameignar og því nauðsynlegt að fyrir liggi samþykkt allra landeigenda fyrir framkvæmdum. Eigendur hafa ekki getað komið sér saman um framkvæmd eða framkvæmdaraðila til að byggja upp á grunni gildandi deiliskipulags.
Bæjarstjóra falið að boða til fundar með landeigendum Fells til að fara yfir stöðuna og kanna möguleika á að hefja uppbyggingu á grunni deiliskipulags.
Umsókn um framkvæmdarleyfi verður tekin fyrir í skipulagsnefnd.

13.
Fundarboð frá Minjastofnun og forsætisráðuneytinu v/Lög um vendarsvæði í byggð-innleiðing
Málsnúmer 201509021
Sveitarfélagið Hornafjörður tilheyrir austursvæði innan Minjastofnunar og Forstöðumaður Hornafjarðarsafna mun mæta á fund á Egilsstöðum 15. september.
Viðhengi
Fundarboð
14.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2015
Málsnúmer 201504044
Lögð fram til kynningar.
15.
Fundargerðir SASS 2015
Málsnúmer 201501065
Lögð fram til kynningar. í fundargerð kemur fram að Fanney Björg Sveinsdóttir atvinnuráðgjafi SASS hefur sagt upp störfum. Bæjarráð þakkar Fanney fyrir gott samstarf undanfarin ár. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að nýr atvinnuráðgjafi verði staðsettur á Hornafirði og hvetur áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, umsóknarfrestur er til 22.september og upplýsingar um starfið er að finna á vef Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sass.is