Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

734. fundur
21. september 2015 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Sæmundur Helgason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 9
Málsnúmer 1508011F
Fræðslustjóri fór yfir fundargerð.

3. liður um endurskoðun á umgjörð leikskóla. Bæjarráð felur fræðslustjóra að vinna erindisbréf vegna stýrihóps um sameiningu leikskóla. Erindisbréf og aðgerðaráætlun verður lögð fyrir á næsta bæjarráðsfundi til umræðu og afgreiðslu. Stýrihópurinn verður skipaður einum fulltrúa frá hverju framboði í bæjarstjórn, einn fulltrúi foreldra, einn fulltrúi starfsmanna leikskólanna og leikskólastjórar beggja leikskólanna. Fræðslustjóri verður starfsmaður stýrihópsins.
Kristján tók til máls og taldi að stýrihópurinn ætti að stíga skref afturábak í vinnuferlinu og byrja alveg frá grunni með það fyrir augum að skoða hvernig best er að vinna að fyrirhugaðri sameiningu.
Fræðslustjóri greindi frá því að fullnægjandi grunnvinna hefur verið unnin og verkefnið tilbúið fyrir næstu skref.

5.liður
Bæjarráð fagnar því að verið sé að skoða betri nýtingu á íþróttamannvirkjum í sveitarfélaginu.

Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 10
Málsnúmer 1509008F
Fræðslustjóri fór yfir fundargerð.

Fundargerð samþykkt.
3.
Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201509069
Bæjarráð samþykkir umsókn fram að áramótum.
4.
Ósk um framlengingu á leigusamningi á Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 201509056
Í ljósi afgreiðslu fræðslu- og tómstundarnefndar í 2. lið fundargerðar nr.10 frá 17. september samþykkir bæjarráð að framlengja leigusamning við Björn Borgþór Þorbergsson vegna Hrollaugsstaða til loka febrúar 2016. Þá ætti að liggja fyrir niðurstaða vegna auglýsingar um dagforeldri í Suðursveit.
5.
Ósk um styrk vegna Dönskunáms
Málsnúmer 201509052
Erindi frá FAS um stuðning við námsferð nemenda FAS til Danmerkur.
Bæjarráð hafnar styrkumsókn.
6.
Heilsurækt á Hornafirði
Málsnúmer 201408036
Yfirlit um framkvæmdir vegna endurbóta á líkamsræktarstöðinni Sporthöllin lagt fram.
Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu með forsvarsmönnum Sporthallarinnar.
7.
Fráveita Dalbraut
Málsnúmer 201509087
Lovísa vék af fundi undir þessum lið.

Páll Róbert tók sæti á fundinum.

Minnisblað lagt fram um framkvæmdir vegna lagfæringa fráveitumála við Dalbraut.
Björgvin fór yfir kostnaðaráætlun.

Samþykkt að senda verkið í verðkönnun.
8.
Endurbætur á íbúð Bjarnarhól 2
Málsnúmer 201509103
Minnisblað um nauðsynlegar endurbætur og kostnað lagt fram.
Bæjarstjóri greindi frá að verkefnið rúmast innan núverandi viðhaldsramma.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í nauðsynlegt viðhald á viðkomandi húsnæði.
9.
Ráðning Skipulagsstjóra
Málsnúmer 201509019
Björn Ingi greindi frá umsóknarferli um stöðu skipulagsstjóra, fjórir sóttu um stöðuna.
Umsækjendur voru:
Björn Helgason BSc verkfræði.
Drífa Gústafsdóttir MSc Skipulagsfræði.
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir byggingatæknifræðingur.
Gunnlaugur Róbertsson MSc verkfræði.
Bæjarráð samþykkir að ráða Gunnlaug Róbertsson og býður hann velkominn til starfa.
10.
Landamerkjadeila milli Núpsstaða og Skaftafells
Málsnúmer 201509095
Lagt fram til kynningar.
11.
Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Málsnúmer 201509093
Lagt fram til kynningar.
12.
Umsögn um drög að frumvarpi um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Málsnúmer 201509090
Lagt fram til kynningar.
13.
Efling embættis lögreglustjóra á Suðurlandi
Málsnúmer 201509089
Bæjarráð Hornafjarðar telur ótækt að niðurskurður skuli eiga sér stað í fjármunum til embættis lögreglustjóra á Suðurlandi í drögum að fjárlögum ríkisins fyrir árið 2016. Fjöldi íbúa á bak við hvern lögreglumann á Suðurlandi er 601. Til samanburðar er hann á landinu öllu 500 íbúar. Þess fyrir utan er ferðamannafjöldinn langmestur um Suðurland. Fjöldi ferðamanna er tvöfalt meiri en fyrir tveimur árum. Fjölgunin er um 500.000 ferðamenn.