Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

738. fundur
19. október 2015 kl. 10:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201509016
Forstöðumenn fóru yfir rammaáætlun og stofnbúnaðaróskir. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun til áframhaldandi vinnu hjá fjármálaskrifstofu.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 265
Málsnúmer 1510005F
Félagsmálastjóri fór yfir fundargerðina.
3.
Samþykkt um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201507034
Lögð fram. Upplýst að umhverfisnefnd mun fjalla um samþykktina áður en hún verður tekin fyrir í bæjarstjórn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við samþykktina.
4.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands haust 2015
Málsnúmer 201510036
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur einstaklinga og fyrirtæki til að sækja um í sjóðinn.
Viðhengi
SASS.pdf
5.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2015
Málsnúmer 201504044
Lagt fram til kynningar.