Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

742. fundur
16. nóvember 2015 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sæmundur Helgason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 266
Málsnúmer 1511002F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 181
Málsnúmer 1511004F
Fundargerð samþykkt.
3.
Fráveita á Höfn - útboð fyrsti áfangi
Málsnúmer 201505089
Lovísa vék af fundi undir þessum lið.
Páll Róbert tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Björn greindi frá stöðu framkvæmda við fráveitu á Höfn.
4.
Sindrabær Endurbætur 2015
Málsnúmer 201503061
Lagt fram bréf verktaka þar sem óskað er eftir frest á verkinu. Bæjarráð samþykkir frest á límingu flísa sökum aðstæðna, en leggur áherslu á að aðrir hlutar verksins verði kláraðir sem fyrst.
5.
Fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201509016
Lagt fram minnisblað þar sem fram kemur að fullnýting álagningar fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði hefði í för með sér auknar tekjur upp á tæp 1400 þkr. Fullnýting álagningar á íbúðarhúsnæði hefði í för með sér hækkun tekna um tæpar 22 mkr.
Að mati Ásgerðar ætti að fara í fulla nýtingu álagningar fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði.
Meirihluti bæjarráðs mun skoða málið nánar og afgreiða það fyrir seinni umræðu fjárhagsáætlunar.
6.
Samstarf sveitarfélaga um byggingu leiguíbúða
Málsnúmer 201511027
Erindi frá Mýrdalshrepp dags. 4. nóvember lagt fram. Óskað er eftir samstarfi nágrannasveitarfélaga um stofnun á sameiginlegu fasteignafélagi um byggingu og rekstur leiguíbúða.
Lagt fram til kynningar. Málið er í vinnslu hjá bæjarstjóra.
7.
Ósk um lagfæringar og frágang umhverfis lóð Húsgagnavals ehf
Málsnúmer 201511036
Erindi frá eigendum Húsgagnaval ehf. dags. 12. nóvember lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna í málinu.
8.
Umsókn um leyfi til landnýtingar
Málsnúmer 201509140
Erindi frá Maríönnu Jónsdóttur dags. 30. sept. lagt fram. Óskað er eftir leyfi til að staðsetja Veitingavagn á lóð sveitarfélagsins við hafnarsvæðið.
Bæjarráð samþykkir tímabundið leyfi til landnýtingar fyrir veitingavagn vegna sumarsins 2016 að uppfylltum öllum leyfum og skilyrðum.

Bæjarráð felur atvinnumálanefnd að útfæra gjaldskrá og reglur vegna starfsemi veitingavagna.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Ránarslóð ehf
Málsnúmer 201511032
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi umsókn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir gististað dags. 12. nóvember lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Öræfin ehf
Málsnúmer 201511025
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, umsókn um endurnýjun rekstarleyfis fyrir gististað dags. 10. nóv. lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis.
11.
Fundargerðir SASS 2015
Málsnúmer 201501065
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Bæjarráð óskar Guðrúnu Ásdísi Sturlaugsdóttur innilega til hamingju með starf atvinnuráðgjafa SASS á Höfn.