Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

743. fundur
23. nóvember 2015 kl. 16:00 - 18:08
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 12
Málsnúmer 1510013F
Ragnhildur fór yfir fundargerðina.

Ásgerður tekur undir afstöðu fulltrúa Framsóknarflokksins varðandi gjaldskrá sundlaugar, að öll börn yngri en 18 ára fái frítt í sund í Hornafirði.

En eins og undanfarin ár fá öll Hornfirsk börn undir 18 ára frítt í sund.

Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 11
Málsnúmer 1511007F
Fundargerð samþykkt.
3.
Fimleikadeild Sindra inn í Mánagarð
Málsnúmer 201510070
Lagt fram minnisblað um flutning fimleikadeildar Sindra inn í Mánagarð.
Bæjarráð samþykkir að fara í þetta tilraunaverkefni með fimleikadeildinni. Fræðslustjóra og bæjarstjóra falin frekari úrvinnsla málsins.
4.
Húsnæði Hirðingjanna
Málsnúmer 201511062
Erindi dags. 21.11 2015 frá Hirðingjunum, nytjamarkaði, óskað er eftir að fá tímabundið húsnæði að láni í Miklagarði undir jóla-og húsgagnamarkað.
Bæjarráð samþykkir að úthluta umbeðnu húsnæði til Hirðingjanna frá 28. nóvember 2015 til 29. febrúar 2016.
5.
Jólahátíð í Hornafirði
Málsnúmer 201511028
Bæjarráð samþykkir afnot af Miklagarði vegna jólahátíðar 29. nóvember nk.
6.
Fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201509016
Ný þjóðhagsspá lögð fram til kynningar. Umræða um breytingar á fjárhagsáætlun fyrir 2. umræðu í bæjarstjórn.

Stofnbúnaðaróskir forstöðumanna fyrir árið 2016 lagðar fram.

Ásgerður óskar eftir kostnaðarmati á endurbótum heimilisfræðistofu í Heppuskóla.
7.
Lántaka 2015-2016
Málsnúmer 201511041
Lagt fram til kynningar.
8.
Nauðasamningasumleitanir húsnæðissamvinnufélagisns Búmanna ehf
Málsnúmer 201511051
Erindi frá Veritas lögmönnum dags. 11. nóvember 2015 lagt fram, greint er frá nauðarsamningsumleitanir hafa verið sendar Lögbirtingablaðinu til birtingar. Þar er skorað á alla þá sem telja sig eiga kröfur á hendur Búmönnum hsf. að lýsa þeim yfir.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að skrifa undir samþykki við fyrirliggjandi nauðasamninga.
9.
Slökkvibifreið Ford F550
Málsnúmer 201511043
Lagt fram tilboð til kaupa á Slökkvibifreið frá fyrirtækinu Ósland ehf.
Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð Óslands ehf. í undanfarabifreið fyrir slökkviliðið á Hornafirði. Kaupverð 23.978.000 án vsk. Í fjárhagsáætlun 2015 eru 7 milljónir í kaup á undanfarabifreið og 13 milljónir til bílakaupa sem ekki hafa verið nýttar. Það sem uppá vantar 3.978.000,- krónur verður tekið af óráðstöfuðu.
10.
Viðbragðshópur
Málsnúmer 201511061
Bæjarráð tekur undir sjónarmið viðbragðshóps um mikilvægi aukins eftirlits á láglendi í Austur- Skaftafellssýslu sem og á Suðurlandi öllu. Láglendiseftirlit fellur undir verksvið lögreglunnar og hér er um lögboðið hlutverki hennar að ræða.
Á ársþingi SASS 2015 var samþykkt ályktun þess efnis að tryggja þurfi auknar fjárveitingar til lögreglunnar til að gera henni kleift að sinna verkefnum sínum. Það segir sig sjálft að fámennt lögreglulið á Suðurlandi, er engan veginn í stakk búið til að takast á við aukin verkefni vegna fjölgunar ferðamanna án aukinna fjárframlaga og stöðugilda.
Bæjarráð útilokar ekki þátttöku í verkefninu og felur bæjarstjóra að starfa með undirbúningshópi viðbragðsaðila.
11.
Staða og þróun á húsnæðismarkaði
Málsnúmer 201510010
Niðurstöður frá fundi um húsnæðismál lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
12.
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk um rusl
Málsnúmer 201511047
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk í Suðursveit dags. 30.10 2015 um ruslatunnur og gáma í dreifbýli.
Bæjarráð þakkar framkomna ályktun og vísar henni til umhverfisnefndar.
Viðhengi
rusl2015.pdf
13.
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk um Hrollaugsstaði
Málsnúmer 201511048
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk í Suðursveit dags. 30.10 2015 um nýtingu Hrollaugstaða og eignarhaldi á lóð sem félagsheimilið stendur við.
Bæjarráð þakkar framkomna ályktun, unnið er að því að eyða allri óvissu um Hrollaugsstaði og lóðinni þar í kring. Leigusamningur rennur út í lok febrúar 2016 og þar af leiðandi verður framtíðarnýting á húsnæðinu tekin til umfjöllunar í byrjun árs. Engin áform eru um annað en að húsnæðið geti áfram nýst sem félagsheimili fyrir íbúa sveitarinnar. Hrollaugsstaðir eru í viðhaldsáætlun sveitarfélagsins eins og annað húsnæði í eigu þess.

14.
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk um hringveg um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201511049
Ályktun frá Kvenfélaginu Ósk í Suðursveit dags. 30.10 2015 þar sem skorað er á innanríkisráðuneytið og sveitarfélagið að flýta framkvæmdum yfir Hornafjarðarfljót.
Bæjarráð þakkar framkomna ályktun, málið er í ferli hjá Vegagerðinni.

15.
Umsögn um útgáfu leyfa Jón Vilberg Gunnarsson
Málsnúmer 201511046
Óskað er eftir umsögn um útgáfu leyfis gististaðar í flokki I.
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn vegna þess að umsækjandi er ekki skráður með lögheimili að Hrísbraut 9.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa breyting á rekstrarleyfi Nýpugarðar ehf
Málsnúmer 201506070
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins þar sem ekki er um umfangsmikla atvinnustarfsemi að ræða né mikil grenndaráhrif.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa Vala ferðaþjónusta
Málsnúmer 201509131
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
18.
Umsókn um lóð
Málsnúmer 201511059
Bæjarráð samþykkir endurúthlutun lóðar við Hafnarbraut 38 til umsækjanda.