Bæjarráð Hornafjarðar
748. fundur
4. janúar 2016
kl.
16:00
-
18:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Sæmundur Helgason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 11
Umræður um erfiða fjárhagsstöðu HSU Hornafirði og vanefndir greiðslna samkvæmt samningi. Fundað hefur verið með forstjóra og fjármálastjóra HSU. Jafnframt fundað með heilbrigðisráðherra vegna málsins. Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu mála og að ekki skuli vera komin niðurstaða í málið vegna útistandandi greiðslna til stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri HSU Hornafirði og bæjarstjóri vinna áfram að málinu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Staða sveitarsjóðs 2015
Ólöf Ingunn fór yfir stöðu sveitarsjóðs.
Fjárhagsstaðan er í samræmi við áætlanir.
Fjárhagsstaðan er í samræmi við áætlanir.
3.
Fjárhagsáætlun 2016
Farið yfir tillögur að úthlutun á fjármagni til stofnbúnaðar. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur með smávægilegum tilfærslum.
4.
Styrkir bæjarráðs
Farið yfir styrkumsóknir til bæjarráðs.
Skógræktarfélag Austur Skaftafellssýslu 250 þús.kr.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 400 þús.kr.
Ferðafélag Austur Skaftfellinga 200 þús.kr.
Steinaljós 500 þús.kr.
Sóknarnefnd Hafnarkirkju 150 þús.kr.
Umsókn frá Fimleikadeild Sindra vísað til fræðslu- og tómstundanefndar.
Umsókn frá Bútasaumsfélagi Hornafjarðar vísað til menningarmálanefndar.
Umsókn Handraðans hafnað þar sem um rekstur einkaaðila er að ræða.
Umsókn frá Skotfélagi Hornafjarðar vegna uppbyggingar á félagssvæði hafnað þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

5.
Fundartími fastanefnda
Umræða um tilfærslu á fundartímum fastanefnda sveitarfélagsins
Farið yfir fundartíma nefnda og ráða sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur til að fastur fundartími bæjarstjórnar verði 2. fimmtudag hvers mánaðar.
6.
Skipulagsbreytingar hjá SASS
Umræður um skipulagsbreytingar SASS.
7.
Fráveita á Höfn - útboð fyrsti áfangi
Lovísa Rósa Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Upplýst að Ólafur Halldórsson verktaki hefur óskað eftir að losna undan verksamningi dags. 31.júlí 2015 vegna 1. áfanga í fráveitumálum Höfn. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og athuga með að ná samningi við næstlægsta tilboðsgjafa að ljúka verkinu.