Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

752. fundur
1. febrúar 2016 kl. 16:00 - 19:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 268
Málsnúmer 1601002F
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 12
Málsnúmer 1601012F
Umræður um mönnun barnalæknis við stofnunina eftir að Eygló Aradóttir hætti. Unnið er að úrlausn.

Varðandi 6. lið fundargerðar heilbrigðis- og öldrunarnefndar leggur bæjarráð fram eftirfarandi bókun:
Mörg undanfarin ár hefur Sveitarfélagið Hornafjörður bent á brýna þörf úrbóta á aðbúnaði íbúa hjúkrunarheimilisins á Hornafirði. Fjölmargar ályktanir og bókanir bæjarstjórnar eru um mikilvægi þess að byggja nýtt hjúkrunarheimili. Sýnt hefur verið framá að ómögulegt er að gera endurbætur á núverandi húsnæði til að það uppfylli lágmarksviðmið Velferðarráðuneytis í þessum málum. Fermetrafjöldi núverandi húsnæðis er of lítill til að fjöldi rýma rúmist innan þess.
Bæjarráð lýsir því yfir að meðfylgjandi umsókn er í samræmi við áætlanir og stefnu sveitarfélagsins um uppbyggingu á þjónustu við aldraða.

Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 14
Málsnúmer 1601013F
Árdís fór yfir stöðuna á verkefninu Ræsing.

Fundargerð samþykkt.
4.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201512065
Árdís kynnti drög að samþykkt um götu- og torgsölu. Bæjarráð lagði fram athugasemdir og vísaði samþykktinni til áframhaldandi vinnu í atvinnumálanefnd.
5.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Frestað til næsta fundar bæjarráðs.
6.
Grænt bókhald fyrir urðunarstað í Lóni 2014
Málsnúmer 201601087
Bryndís fór yfir vinnuferli fyrir grænt bókhald. Á heildina kemur skýrslan vel út. Bæjarráð vísar skýrslunni til bæjarstjórnar.
7.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Björn Imsland, umsjónarmaður fasteigna og framkvæmda, kynnti nýjar teikningar að endurbótum Vöruhússins. Bæjarráði lýst vel á framlagðar teikningar.
8.
Fráveita á Höfn - útboð fyrsti áfangi
Málsnúmer 201505089
Lovísa Rósa Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Páll Róbert Matthíasson tók sæti á fundinum.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála og skýrði frá því sem gerst hefur frá því málið var síðast rætt í bæjarráði. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað við næstlægsta bjóðanda í verkið um að klára það. Þær viðræður hafa byggt á verðum sem boðin voru í verkið. Eins og áður hefur komið fram er um einhverja magnaukningu að ræða og var hún komin fram áður en núverandi verktaki sagði sig frá verkinu. Það er mat bæjarstjóra og starfsmanna tæknisviðs sem farið hafa yfir málið að um óverulegt frávik sé að ræða frá upphaflegu útboði. Áætluð verklok voru 20. október 2015 og því ljóst að verkið hefur dregist talsvert og að ef fara ætti í útboð að nýju munu verklok dragast umtalsvert umfram það sem fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir sem hefur þá talsverð áhrif á framkvæmdaáætlanir sveitarfélagsins í fráveitumálum. Í viðræðum við verktaka er gert ráð fyrir verklokum 15. maí 2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningum.
9.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201501018
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar.
10.
Eftirlit með vatnsveitu Hafnar árið 2015
Málsnúmer 201601045
Farið yfir eftirlitsskýrslu er varðar sýnatöku úr vatnsbóli Hafnar. Öll sýni sem tekin voru á árinu 2015 stóðust kröfur reglugerðar nr. 536/2001 um neysluvatn. Bæjarráð vísar niðurstöðunum til kynningar í umhverfisnefnd.
11.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2a
Málsnúmer 201601079
Sótt er um lóð við Heppuveg 2a. Bæjarráð samþykkir lóðaúthlutun.
12.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis Hafnarbraut 41
Málsnúmer 201601056
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa Hrísbraut 9
Málsnúmer 201512048
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Þorrablót Suðrusv/Mýra
Málsnúmer 201601014
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
15.
Umsögn um breytingar á byggingarreglugerð