Bæjarráð Hornafjarðar
754. fundur
15. febrúar 2016
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Fulltrúar ungmennaráðs boðuðu forföll vegna veikinda. Bæjarráð samþykkir ósk ungmennaráðs um áheyrnarfulltrúa í nefndum sveitarfélagsins samkvæmt fyrirmynd frá Seltjarnarnesi. Fulltrúar ungmennaráðs munu mæta á fund bæjarráðs 22. febrúar þar sem farið verður nánar í fyrirkomulagið.
2.
Rammasamningur ríkisins 2016, aðild
Aðildarumsókn sveitarfélaga vegna rammasamninga ríkisins 2016 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi aðild að rammasamningum ríkisins árið 2016.
3.
Jökulheimar - staða
Björn Ingi fór yfir stöðu verkefnisins. Upplýsti um fund með mögulegum fjárfestum sem fram fór sl. föstudag. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
4.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2 b
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar að Heppuvegi 2 b.
5.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2c
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar að Heppuvegi 2 c.
6.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 3
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar að Heppuvegi 3.
7.
Reykjavíkurflugvöllur - framtíðarstaðsetning
Deiliskipulag fyrir Reykjavíkur flugvöll er í kynningu til 17. febrúar.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar skorar á ríkisstjórn Íslands og borgarstjórn Reykjavíkur að tryggja óskerta starfsemi Reykjavíkurflugvallar og tryggja þar með öryggishagsmuni íbúa landsbyggðanna, a.m.k. þangað til jafngóð eða betri lausn finnst. Það er með öllu ólíðandi að dregið verði úr öryggi sjúklinga og slasaðra sem þurfa að komast með hraði á Landspítalann þar sem staðsett er sérhæfð þjónusta s.s. hjartaþræðingar, heila- og taugaskurðlækningar og vökudeild.
Árið 2015 voru 58 einstaklingar fluttir í sjúkraflugi frá Hornafjarðarflugvelli.
Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut.
Mikilvægt er að aðgengi íbúa landsbyggðanna að öflugustu heilbrigðisþjónustu landsmanna sé tryggt.
Árið 2015 voru 58 einstaklingar fluttir í sjúkraflugi frá Hornafjarðarflugvelli.
Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut.
Mikilvægt er að aðgengi íbúa landsbyggðanna að öflugustu heilbrigðisþjónustu landsmanna sé tryggt.
8.
Ferðaþjónusta í þéttbýli
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi leyfi til gistingar innan þéttbýlisins. Undanfarin ár hefur þróunin verið í þá átt að íbúðarhúsnæði er tekið undir ferðaþjónustu í stað uppbyggingar. Þetta er að gerast á sama tíma og eftirspurn eftir húsnæði til leigu hefur farið vaxandi ásamt miklum þrýstingi um að sveitarfélagið byggi íbúðir til útleigu. Það er afstaða bæjarráðs að leyfi til íbúðargistingar í skipulögðu íbúðarhverfi samrýmist ekki aðalskipulagi sveitarfélagsins og getur ekki flokkast sem minniháttar atvinnustarfsemi. Bæjarráð felur starfsmönnum að upplýsa núverandi leyfishafa um þessa afstöðu.
9.
Fundargerðir Nýheima 2016
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Fundargerðir SASS 2016
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Bæjarráð gerir athugasemd við hversu seint fundargerðir stjórnar SASS koma fram.
11.
Skipulagsbreytingar hjá SASS
Lagt fram til kynningar.
12.
Fundargerðir HAUST 2016
Fundargerðin lögð fram til kynningar.