Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

757. fundur
7. mars 2016 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 13
Málsnúmer 1602016F
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 14
Málsnúmer 1602007F
4. 201602011 - Fjölbreytni í ferðaþjónustu í Suðursveit
Bæjarráð telur ekki tímabært að vísa málinu til bæjarstjórnar þar sem undirbúningur er ekki kominn á það stig.
Fundargerð samþykkt.
3.
Lóðaúthlutanir
Málsnúmer 201603012
Bæjarráð felur starfsmönnum að útbúa úthlutunarskilmála vegna lóða í deiliskipulagi útbær.
4.
Umsókn um lóð Ófeigstanga 12
Málsnúmer 201603015
Lög fram umsókn Skinney Þinganes hf. Frá 4. mars 2016 um endurnýjun á lóðúthlutun við Ófeigstanga 12.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Umsókn um lóð Ófeigstanga 14
Málsnúmer 201603014
Lög fram umsókn Skinney Þinganes hf. Frá 4. mars 2016 um endurnýjun á lóðúthlutun við Ófeigstanga 14.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Útboð á sorphirðingu- og urðun
Málsnúmer 201602067
Samningar við verktaka um sorphirðingu og sorpeyðingu eru runnir út og var því leitað til tveggja verkfræðistofa til að leita eftir tilboði í útboðsgerð.
Þau tilboð sem bárust hljóða svo án VSK:
Mannvit:
Útboðsgögn fyrir sorphirðu og gámaleigu 1.550.000 kr.
Útboðsgögn fyrir sorphirðu og gámaleigu og sér útboðsgögn fyrir urðun 2.100.000 kr.
Útboðsgögn sameiginlega fyrir verkhluta A (sorphirðu og gámaleigu) og verkhluta B (urðun) 1.900.000 kr.
EFLA:
Útboðsgögn og verklýsingar fyrir tvö útboð og umsjón 1.200.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Eflu og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
7.
Málsmeðferð styrkumsókna og styrkja sveitarfélagsins
Málsnúmer 201603011
Bæjarstjóri lagði fram minnisblað um skoðun á ferli við úthlutun styrkja. Bæjarráð felur starfsmönnum þeirra nefnda sem úthluta styrkjum ásamt fjármálastjóra og bæjarstjóra að fara yfir þessi mál.
8.
Meðhöndlun og ráðstöfun leigutekna fasteigna
Málsnúmer 201601091
Lögð fram tillaga að verklagi um meðhöndlun leigutekna. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur.
9.
Ósk um styrk Sigríður Gísladóttir
Málsnúmer 201602100
Erindi Sigríðar Gísladóttur dagsett í febrúar 2016 - ósk um styrk.
Erindinu vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.
10.
ósk um styrk við kaup og úthlutanir trjáplantna til grunnskólabarna
Málsnúmer 201602097
Erindi frá Yrkjusóði dags. 26. febrúar 2016 lagt fram. ÓSkað er eftir styrk til kaupa á trjáplöntnum til grunnskólabarna.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 100.000 kr. tekið af óráðstöfuðu.
11.
Kvikmyndaskóli fyrir unglinga
Málsnúmer 201603003
Erindi frá Emil Morávek og Natan Jónssyni þar sem kynnt er hugmynd að kvikmyndaskóla sumarið 2017 á Hornafirði. Óskað er eftir stuðningi við verkefnið.
Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga um verkefnið.
12.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201512055
Björn Ingi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði gerir ráð fyrir tæpum 14 m.kr. halla. Í áætluninni er hækkun launa milli ára vegna sjúkraflutninga tæpar 13 m.kr. Enn er óvissa með húsnæðisgjald vegna öldrunarþjónustu og misræmi er á fjárlögum og upplýsingum frá velferðarráðuneytinu sem nemur 7 m.kr. Bæjarráð telur ekki forsvaranlegt að afgreiða fjárhagsáætlun í ljósi þessarar óvissu.
13.
Verkefni til fjölgunar leiguíbúða
Málsnúmer 201602052
Björn Ingi fór yfir stöðu verkefnisins. Bæjarstjóra falið að útbúa minnisblað sem lagt verður fyrir bæjarstjórn.
14.
Breytingar í leikskólamálum á Höfn
Málsnúmer 201602046
Bæjarstjóri fór yfir upplýsingar sem hann hefur dregið saman úr gögnum málsins.
Bæjarráð telur vænlegast að ráðast í viðbyggingu og endurbætur á Lönguhólum til að ná fram markmiðum um einn leikskóla undir sama þaki. Þessi ákvörðun byggir m.a. á niðurstöðum verkefnagreininga þar sem fram kemur að lóðin er veðursæl og stækkanleg og næg bílastæði eru fyrir hendi. Komið er að endurbótum á húsnæði Lönguhóla án tillits til þess í hvað húsnæðið yrði notað í framtíðinni. Kostnaður við þennan valkost í leikskólamálum er um 290 milljónir á meðan kostnaður við byggingu nýs leikskóla á nýjum stað er áætlaður um 450 milljónir.
Meirihluti bæjarráðs fulltrúar D og E lista telja að til að vinna markvisst að sameiningunni skuli leggja áherslu á að hefja sameiningu árganga leikskólabarna eftir sumarfrí leikskólanna 2016. Fræðslustjóra í samvinnu við leikskólastjóra verði falið að gera áætlun um sameiningu árganga fram að opnun nýs leikskóla.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
15.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2016
Málsnúmer 201603013
Fundargerð 835 lögð fram til kynningar.