Bæjarráð Hornafjarðar
758. fundur
14. mars 2016
kl.
16:00
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 270
Fundargerð samþykkt.
2.
Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins
Samningur um Loftlagsverkefnið var undirritaður á bæjarstjórnarfundi ásamt aðgerðaráætlun um 3% minni losun á gróðurhúsalofttegundum á ári frá starfsemi og stofnunum sveitarfélagsins.
Bæjarráð hvetur íbúa og fyrirtæki til að taka þátt í þessu verkefni með sveitarfélaginu og kynna sér aðgerðaáætlunina.
3.
Geymslur Hornafjarðasafna
Farið yfir stöðu mála og mögulega lausn mála.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að vinna áfram að úrlausn geymsluvanda Hornafjarðarsafna og kynna málið í framhaldinu í menningarmálanefnd.
4.
Jökulheimar - staða
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og boða til opins fundar um möguleika á samstarfsverkefni varðandi Jökulheima.
5.
Kvikmyndaskóli fyrir unglinga
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 400 þ.kr. og vísar málinu til úrvinnslu hjá fjármálastjóra.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi kvennakór Hornafjarðar
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
7.
umsókn um endurnýjun á rekstarleyfi Stekkatún ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
8.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2016
Lagt fram fundarboð aðalfundar sem fram fer 7. apríl 2016
Lagt fram til kynningar.