Bæjarráð Hornafjarðar
759. fundur
21. mars 2016
kl.
16:00
-
18:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 17
5. liður í fundargerð fjallar um fjölgun barna á skólaaldri í Öræfum. Bæjarráð fagnar þeirri þróun og þeim áskorunum sem því fylgir.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 14
Bæjarráð hefur verulegar áhyggjur af boðuðu verkfalli sjúkraliða 4. apríl nk. og hvetur samningsaðila til að ná sáttum svo komast megi hjá verkfalli.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundur með framkvæmdastjórn HSU á Selfossi
Matthildi falið að finna hentugan fundartíma. Bæjarráð leggur áherslu á að hægt verði að funda með fulltrúum sjúkratrygginga og velferðarráðuneytis í sömu ferð.
4.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Matthildur fór yfir áherslupunkta við gerð nýs samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Bæjarráð leggur áherslu á að samningaviðræður hefjist sem fyrst og verði lokið fyrir ágústlok 2016.
5.
Rekstur sláturhúss
Bæjarráð leggur mikla áherslu á að tryggður verði rekstur sláturhúss á svæðinu. Undanfarin ár hefur verið lögð mikil vinna í matarframleiðslu úr héraði, ná fram upprunatengingum og sérstöðu á mat af svæðinu. Ein af grunnstoðum þess að svo megi áfram vera er að rekið sé sláturhús í sveitarfélaginu.
Bæjarstjóra falið að upplýsa atvinnumálanefnd um málið.
Bæjarstjóra falið að upplýsa atvinnumálanefnd um málið.
6.
Ísland ljóstengt
Bæjarráð gerir athugasemd við hversu skammur tími er gefin til að skila inn umsókn í verkefnið Ísland ljóstengt. Opnað var fyrir umsóknir 15. mars og skilafrestur er til 23. mars. Erfitt getur verið að ná saman nauðsynlegum fylgiskjölum þar sem helmingur tímans er í dymbilviku og margir nýta hana til frítöku. Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
7.
Áætlanir Skotfélags Hornafjarðar vegna uppbyggingar skotsvæðis
Tekjuáætlun lögð fram í samræmi við óskir bæjarráðs í tengslum við deiliskipulagsgerð.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
9.
Ósk um framlengingu á leigusamning á Hrollaugsstöðum
Bæjarráð óskar eftir að unnin verði áætlun um að breyta skólahúsnæði við Hrollaugsstaði í íbúðir til útleigu þar af verður ein fyrir dagforeldri. Kostnaðaráætlanir við þessar framkvæmdir komi inn vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2017. Bæjarráð samþykkir að framlengja leigu á Hrollaugsstöðum við núverandi leigutaka til 1. október 2016, tíminn fram að því verði nýttur til hönnunar og undirbúnings.
Starfsmönnum falið að ganga frá samningi í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmönnum falið að ganga frá samningi í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 8.apríl 2016
Lagt fram til kynningar, kjörnir fulltrúar á landsing Sambandsins fara fyrir hönd sveitarfélagsins.
11.
Námsferð til Svíþjóðar vegna íbúalýðræðis á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga
Erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga lagt fram.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarsjórnarmönnum er boðið upp á námsferð til Svíþjóðar 29. ágúst til 1. september nk. til að kynna sér íbúalýðræði í sænskum sveitarfélögum, en þau
standa mjög framarlega á því sviði í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Í Svíþjóð er áherslan á að samþætta íbúasamráð inn í ákvörðunartökuferla og beita réttum
aðferðum til að ná til rétts hóps íbúa.
Bæjarráð samþykkir að þrír bæjarfulltrúar auk eins starfsmanns fari í umrædda námsferð.
standa mjög framarlega á því sviði í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Í Svíþjóð er áherslan á að samþætta íbúasamráð inn í ákvörðunartökuferla og beita réttum
aðferðum til að ná til rétts hóps íbúa.
Bæjarráð samþykkir að þrír bæjarfulltrúar auk eins starfsmanns fari í umrædda námsferð.
12.
Fundargerðir SASS 2016
Fundargerðin lögð fram til kynningar.