Bæjarráð Hornafjarðar
761. fundur
11. apríl 2016
kl.
14:00
-
17:17
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri, Sigurjón Örn Arnarson og Magnús Jónsson endurskoðendur sveitarfélagsins frá KPMG fóru yfir ársreikning 2015 og drög að skýrslu endurskoðenda.
Bæjarráð vísar ársreikningi 2015 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2.
Uppboð á jörðinni Fell við Jökulsárlón
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Þann 14. apríl nk. mun hefjast uppboðsferli á jörðinni Fell. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur lýst því yfir að það telji mikilvægt að uppbygging á svæðinu hefjist sem fyrst í samræmi við samþykkt deiliskipulag frá 2013.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda erindi til fjármála- og umhverfisráðuneytis þar sem könnuð verði hugsanleg aðkoma hins opinbera að málinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda erindi til fjármála- og umhverfisráðuneytis þar sem könnuð verði hugsanleg aðkoma hins opinbera að málinu.
3.
Skipulagsnefnd - 15
Bæjarráð gerir fyrirvara um hvort þurfi að vísa lið nr. 8 til bæjarstjórnar. Starfsmönnum falið að skoða málið nánar. Fundargerð samþykkt.
4.
Umhverfisnefnd - 15
Bæjarráð felur starfsmönnum að hafa samband við HAUST varðandi möguleika á kröfum um flokkun á sorpi frá framkvæmdaraðilum.
Bæjarráð vísar umræðu um sorpkör á áningastöðum til starfsmanns og atvinnumálanefndar að kannað verði hver kostnaður við hirðingu verði og á hvaða áningastöðum er nauðsynlegt að koma slíkum körum fyrir.
Fundargerð samþykkt.

5.
Skýrsla starfshóps um úrgangsmál
Lögð fram til umsagnar skýrsla sem starfshópur á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur unnið um stefnumótun í Úrgangsmálum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögur að úrbótum sem fram koma í skýrslunni.
6.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2016
Björn Ingi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði gerir ráð fyrir tæpum 14 m.kr. halla.
Enn er óvissa með húsnæðisgjald vegna öldrunarþjónustu og misræmi er á fjárlögum og upplýsingum frá velferðarráðuneytinu sem nemur 7 m.kr. Einnig hefur heilbrigðisráðherra boðað hækkun á daggjöldum en óvíst er um hve mikla hækkun er að ræða. Unnið er að því að fá endurskoðun á framlagi ríkis vegna sjúkraflutninga.
Bæjarráð staðfestir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði og vísar henni til bæjarstjórnar.

7.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2016
Ólöf Ingunn fjármálastjóri gerði grein fyrir fyrsta viðauka við fjárhagsáætlun 2016. Bæjarráð vísar viðauka I til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Verkefni til fjölgunar leiguíbúða
Íbúafundur vegna verkefnis um leiguíbúðir verður haldinn miðvikudaginn 13. apríl. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ verða gestir fundarinns. Verktakar, íbúar og áhugasamir um uppbyggingu í sveitarfélaginu eru hvattir til að mæta.
9.
Skipulag og framkvæmd heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 31. mars.
Bæjarráð leggur áherslu á að við endurskoðun á skipulagi heilbrigðiseftirlits verði þjónusta við íbúa og fyrirtæki ekki skert.
10.
Umsókn um lóð, Vesturbraut 6
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Bæjarráð telur að hugmyndir umsækjanda um byggingarefni séu ekki í samræmi við skipulag.
Bæjarráð telur að hugmyndir umsækjanda um byggingarefni séu ekki í samræmi við skipulag.