Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

762. fundur
18. apríl 2016 kl. 16:00 - 17:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 271
Málsnúmer 1603008F
Fundargerð samþykkt.
2.
Öldungaráð
Málsnúmer 201509045
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Björn Imsland fór yfir útboðslýsingu fyrir endurbætur í Vöruhúsi. Bæjarráð heimilar starfsmanni að setja verkið í útboð. Fjármálastjóra falið að koma með tillögu að fjármögnun verksins.
4.
Sindrabær Endurbætur 2016
Málsnúmer 201604059
Björn Imsland fór yfir stöðu utanhúss framkvæmda á Sindrabæ. BI fór yfir útboðslýsingu fyrir innanhúss endurbætur, áfanga 4a, í Sindrabæ. Bæjarráð heimilar starfsmanni að setja verkið í útboð.
5.
Staða sveitarsjóðs 2016
Málsnúmer 201604057
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs m.v. 29.2.2016. Staðan er í samræmi við áætlanir.
6.
Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 201604053
Lagt fram bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um arðgreiðslu vegna ársins 2015
Lagt fram til kynningar.
7.
Ósk um styrk úr Styrkvegasjóð 2016
Málsnúmer 201604048
Bæjarstjóra falið að senda umsókn til Vegagerðarinnar.
8.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis - Ungmennafélag Öræfa
Málsnúmer 201604045
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
9.
Vegna hreinlætisaðstöðu í Hrollaugshólum
Málsnúmer 201604029
Bæjarráð bendir á að salernisvandi meðfram þjóðvegi 1 er í skoðun hjá Vegagerðinni og Stjórnstöð ferðamála og vonar að sú vinna skili sér á áningarstaði í sveitarfélaginu.
10.
Áskorun til bæjarstjórnar vegna póstþjónustu í dreifbýli
Málsnúmer 201604028
Bæjarráð tekur undir áhyggjur Búnaðarfélags Suðursveitar. Á fundi bæjarráðs nr. 722 dags. 26. maí 2015 var send athugasemd við drög að reglugerðarbreytingu varðandi framkvæmd póstþjónustu. Bæjarráð vísar erindinu til umræðu í atvinnumálanefnd.