Bæjarráð Hornafjarðar
763. fundur
25. apríl 2016
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 16
4. 201604055 - Starfsmannamál Hornafjarðasafna
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um núverandi stöðugildi Hornafjarðarsafna og frekari rökstuðningi á aukningu stöðugildis skjalavarðar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um núverandi stöðugildi Hornafjarðarsafna og frekari rökstuðningi á aukningu stöðugildis skjalavarðar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 18
2. 201604007 - Skýrsla tómstundafulltrúa 2016
Bæjarráð leggur til að fræðslu- og tómstundanefnd móti stefnu um notkun tölvuleikja í Þrykkjunni og aldursviðmið tölvuleikja, m.a. á LAN helgum.
3. 201604051 - Skipulag æskulýðs- og tómstundamála
Bæjarstjóra og fræðslustjóra falið að skoða nánar skipulag starfsmannamála í Þrykkjunni.

3.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638.mál
Erindi frá Alþingi dags. 21. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til samgönguáætlun.
Bæjarráð gerir alvarlega athugasemd við áætlaðar fjárhæðir til rannsókna á Grynnslunum og innsiglingu um Hornafjarðarós. Einnig furðar bæjarráð sig á hve litlum fjármunum er varið til fækkunar á einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins. Færa má fyrir því haldbær rök að slíkar framkvæmdir eru ein mesta öryggis- og samgöngubót á þjóðvegum.
4.
Menningarstefna Hornafjarðar
Bæjarráð fór yfir drög að menningarstefnu. Umræður um kostnaðarþætti og útfærslu stefnunnar. Athugasemdum komið á framfæri til starfsmanns menningarmálanefndar.
5.
Umsókn um lóð Víkurbraut 6
Umsókn Gísla Karls Ágústssonar um lóð að Víkurbraut 6 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Umsókn um lóð Víkurbraut 8
Umsókn Jöklasýn ehf um lóð að Víkurbraut 8 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa v. heimagistingar á Hafnarbraut 20
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.