Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

777. fundur
29. ágúst 2016 kl. 16:00 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 18
Málsnúmer 1608003F
Bæjarráð tekur undir áhyggjur heilbrigðis- og öldrunarnefndar, það er mikið áhyggjuefni að ekki skuli vera hafnar viðræður um gerð nýs þjónustusamnings við Sveitarfélagið Hornafjörð um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Heilbrigðisráðherra hefur margoft lýst yfir vilja til að gerður verði nýr samningur á svipuðum nótum og verið hefur í gildi um þennan málaflokk síðustu 20 árin. Það hefur einnig komið skýrt fram að bæjarstjórn sveitarfélagsins telur þetta fyrirkomulag henta öllum málsaðilum. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að nú þegar verði gengið frá formsatriðum eins og hver fari með samningsumboð að hálfu ríkisins svo mögulegt sé að klára samning á næstu vikum.

Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 274
Málsnúmer 1606009F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 188
Málsnúmer 1608010F
Fundargerð samþykkt.
4.
Bygging á nýju hjúkrunarheimili HSSA
Málsnúmer 201212003
Illa hefur gengið að ná eyrum ráðamanna vegna byggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilinu. Heilbrigðis-og öldrunarnefnd leggur til að sveitarfélagið setji fjármagn í teikningar. Þá verði send inn umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra í næstu úthlutun ásamt teikningum og ítarlegri kostnaðaráætlun. Jafnframt verði leitað leiða til að tryggja mótframlag frá ríkissjóði.
Bygging nýs hjúkrunarheimilis hefur verið á dagskrá síðustu 15 árin. Þegar byggingu núverandi hluta hjúkrunarheimilisins lauk var það 1.áfangi byggingarinnar. Óskuðu fulltrúar ríkis eftir að byggingu 2. áfanga yrði seinkað vegna stöðu í efnahagsmálum á þeim tíma. Í það minnsta einu sinni hefur staðið til að taka fyrstu skóflustungu að 2.áfanga. Vegna þessa er staðan sú í dag að matsalur hjúkrunarheimilisins átti upphaflega að vera gangur og eldhúsið býtibúr. 24 hjúkrunarrými eru á heimilinu, 22 þeirra eru 20 m2 tvíbýli án salerna. Sameiginleg salerni eru frammi á gangi. Það er alveg ljóst að engin rými á hjúkrunarheimilinu uppfylla viðmiðunarreglur velferðarráðuneytisins hvað aðbúnað varðar. Það er mjög brýnt að hafist verði handa að nýju á byggingu 2. áfanga. Það hlé sem gert var árið 1996 ætti að vera orðið nægilega langt til að ríkið sjái sér fært að koma að málinu að nýju og klára þá byggingu sem hafist var handa við árið 1990.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdarstjóra heilbrigðisstofnunar HSU Hornafirði að fara yfir eldri gögn málsins og leita til arkitekta með að uppfæra teikningar í samræmi við gildandi reglugerðir og viðmiðunarreglur. Einnig felur bæjarráð bæjarstjóra að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra og stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra. Þessir fundir þurfa að eiga sér stað sem fyrst svo mögulegt verði að gera viðeigandi ráðstafanir í tengslum við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
5.
Uppbygging á innviðum fyrir rafbíla
Málsnúmer 201606083
Gunnlaugur fór yfir mögulega samstarfsaðila og áætlaðan kostnað við verkefnið. Bæjarráð felur starfsmönnum að óska eftir fundi með umræddum aðilum. Umhverfisfulltrúa og skipulagsstjóra falið að halda áfram með málið.
6.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi Fiskhóll 11
Málsnúmer 201608058
Erindi frá Sveinbirni Imsland og Ragnhildi Magnúsdóttur.
Málinu vísað til skipulagsnefndar.
7.
Umsókn um lóð Álaleira 16
Málsnúmer 201608049
Umsókn Kristinns Þórs Óskarsson um lóð að Álaleiru 16 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 20 og 21 október
Málsnúmer 201608069
tilkynning um ársþing SASS 21 og 22 okt 2016 haldið að Hótel Jökulsárlóni Hnappavöllum
Sveitarfélagið á 5 fulltrúa á ársþing SASS sem haldið verður að Hótel Jökulsárlóni Hnappavöllum. Eftirtaldir eru fulltrúar sveitarfélagsins. Páll Róbert Matthíasson, Ásgerður Gylfadóttir, Kristján Sigurður Guðnason, Ragnheiður Hrafnkelsdóttir og Björn Ingi Jónsson.