Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

789. fundur
21. nóvember 2016 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 26
Málsnúmer 1611004F
Farið yfir fundargerð.

Fundargerð samþykkt
2.
Bygging leikskóla undir Fiskhól undirskriftir
Málsnúmer 201610095
Hulda Björg Svansdóttir og Heiður Kr. Sigurgeirsdóttir afhentu bæjarstjóra undirskriftarlista með 55 einstaklingum. Mótmælt er fyrirhuguðum framkvæmdum vegna leikskóla. Ennfremur er hvatt til að nýr leikskóli verði byggður undir Fiskhól þar sem það sé betri kostur.
Ásgerður lagði til að bæjarráð fundi með starfsfólki leikskólanna þar sem stór hluti undirskrifta er frá þeim.
Sæmundur ítrekaði að langur aðdragandi og undirbúningur hefur verið að málinu og að þeirri niðurstöðu að byggja ætti við Lönguhóla og sameina þannig leikskóla undir einu þaki. Endanleg ákvörðun um þetta var tekin á bæjarstjórnarfundi í mars 2016. Við ákvörðunina vó einna þyngst munur á kostnaði við að byggja nýtt eða byggja við Lönguhóla. Frá þeim tíma hefur farið fram hönnunar- og undirbúningsvinna að endurbótum og viðbyggingu Lönguhóla. Undirbúningur að framkvæmdinni er kominn langt á veg og óráðlegt að breyta þeirri vegferð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa fund bæjarráðs með starfsfólki leikskólanna og í framhaldi af honum yrði öðrum áhugasömum boðið á fund bæjarráðs.
3.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Vísað til áframhaldandi vinnu á fjármálaskrifstofu.
4.
Umsögn um útgáfu leyfa Bryndís Flosadóttir
Málsnúmer 201611064
Erindi frá Sýslumanni dags. 15. nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Hæðagarði 6. Gististaður í flokki I
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
5.
Umsókn um lóð Vesturbraut 6
Málsnúmer 201604026
Erindi dagsett 15. nóvember þar sem lóðarhafi óskar eftir að skila úthlutaðri lóð að Vesturbraut 6.
Bæjarráð samþykkir skil á lóðar úthlutun.
6.
Umsókn um lóð að Hafnarbraut 38
Málsnúmer 201611017
Lóðin er ekki laus til umsóknar.
7.
Athugasemdir vegna ákvörðunar Bæjarráðs um hafna umsókn um lóð
Málsnúmer 201611016
Erindi frá Arnarsýn ehf vegna umsóknar um lóð að Hafnarbraut 6
Bæjarráð hefur leitað lögfræðiálits vegna lóðarúthlutunar að Hafnarbraut 6 og brugðist við í samræmi við ráðleggingar og ákvæði gildandi reglna sveitarfélagsins um úthlutun byggingarréttar.
Sveitarfélagið hefur sent lóðarhafa bréf samkvæmt 8. gr. reglnanna.
8.
Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða í sveitarfélaginu.
Málsnúmer 201609040
Lögð fram drög að nýjum úthlutunarreglum. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að enduskoðun á reglum.