Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

798. fundur
30. janúar 2017 kl. 16:00 - 18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Tjaldsvæði á Höfn - Útboð 2016
Málsnúmer 201611094
Tilboðsgjafar komu á fund bæjarráðs og gerðu nánari grein fyrir tilboðum sínum.
Þrjú tilboð bárust frá:
1. Sunnu Guðmndsdóttur og Ara Jónssyni
2. Sigrúnu Kapitólu Guðrúnardóttur
3. Ólafi Páli Vignissyni og Reyni Ásgeirssyni.
Bæjarráði líst best á tilboð Sunnu Guðmundsdóttur og Ara Jónssonar. Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við tilboðsgjafa og útfæra samning á grunni auglýsingar og tilboðs.
2.
Atvinnumálanefnd - 25
Málsnúmer 1701011F
Rætt um hjóla- og gönguleiðakort.
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 192
Málsnúmer 1701007F
Fundargerð samþykkt.
4.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 279
Málsnúmer 1701009F
Fundargerð samþykkt.
5.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Málsnúmer 201612006
Fulltrúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samstarfshópi vegna bókunar 1 í Kjarasamningi verða fræðslustjóri og bæjarstjóri.
6.
Fráveita: Lenging á yfirfalli vesturströnd og aðskilnaður regnvatns á miðsvæði
Málsnúmer 201612016
Skipulagsstjóri kynnti hugmyndir að breytingum á fráveitulögnunum á miðsvæði til að aðgreina regnvatn frá skólpi. Í miklum rigningum hafa niðurföll og lagnir á miðsvæði Hafnar ekki undan og safnast í stóra polla á nokkrum stöðum.
Bæjarráð telur framkvæmdir til bóta og felur starfsmanni að fullvinna hugmyndir og hönnun. Málið verði tekið á dagskrá bæjarráðs þegar endanleg gögn liggja fyrir.
7.
Fráveita: 2. áfangi fráveita Höfn
Málsnúmer 201701029
Hönnunargögn og verklýsing við 2. áfang fráveitu lögð fram.
Bæjarráð fór yfir hönnunargögn og verklýsingu.
Rætt um áætluð verklok framkvæmda. Bæjarráð leggur áherslu á að framkvæmd taki sem skemmstan tíma.
Bæjarráð samþykkir að setja 2. áfanga fráveitu Höfn í útboð.
8.
Lóðarleigusamningur Hafnarbraut 37
Málsnúmer 201610054
Erindi Helga Hálfdánarsonar frá 24. janúar 2017 vegna lóðastærðar.
Bæjarráð samþykkir að lóðamörk verði uppfærð í samræmi við raunstærð.
9.
Umsókn um styrk 1 blárstengur
Málsnúmer 201701067
Vísað til umræðu um aðra styrki á næsta fundi bæjarráðs.
10.
Umsókn um lóð Víkurbraut 8
Málsnúmer 201604043
Bæjarstjórn samþykkti úthlutun lóðar að Víkurbraut 8 á fundi 226. maí 2016. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
11.
Umsókn um lóð Víkurbraut 6
Málsnúmer 201604044
Bæjarstjórn samþykkti úthlutun lóðar að Víkurbraut 6 á fundi 226. maí 2016. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
12.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2c
Málsnúmer 201602047
Bæjarstjórn samþykkti úthlutun lóðar að Heppuvegi 2c á fundi 224. mars 2016. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
13.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2 b
Málsnúmer 201602028
Bæjarstjórn samþykkti úthlutun lóðar að Heppuvegi 2b á fundi 224. mars 2016. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
14.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 3
Málsnúmer 201602019
Bæjarstjórn samþykkti úthlutun lóðar að Heppuvegi 3 á fundi 224. mars 2016. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
15.
Verkfallsheimild opinberra starfsmanna
Málsnúmer 201701073
Samkvæmt lögum nr.94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er lagður fram listi yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa framlagðan lista.