Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

802. fundur
27. febrúar 2017 kl. 16:00 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201702074
Einar Kristjánsson lagði fram erindi og kynnti hugmyndir sýnar um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn. Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í atvinnumála-, umhverfis- og skipulagsnefndar.

2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 24
Málsnúmer 1702011F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 26
Málsnúmer 1702009F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
4.
Menningarmálanefnd - 25
Málsnúmer 1702004F
Farið yfir fundargerð. Starfsmönnum falið að skoða möguleika á aðstöðu fyrir bíla og vélar sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
5.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Bæjarstjóri og félagsmálastjóri fóru yfir þróun mála frá því það var síðast tekið fyrir í bæjarráði.
Komin er fram krafa um fjárnám á grunni niðurstöðu sáttanefndar.
Bæjarstjóra og félagsmálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Fráveita: 2. áfangi fráveita Höfn
Málsnúmer 201701029
Farið yfir tilboð vegna fráveitu áfanga 2.
Eitt tilboð barst í verkið frá Rósaberg ehf. að upphæð 83.604.372 krónur og 13% yfir kostnaðaráætlun. Einnig er í tilboðinu gerður fyrirvari um tímasetningar. Tilboðsgjafi leggur til frestun á því sem eftir er af áfanga 1 þar til framkvæmdum við áfanga 2 er lokið.
Bæjarráð felst ekki á að fresta áfanga 1 og er því ekki annar kostur í stöðunni en að hafna tilboðinu.
7.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Málsnúmer 201412013
Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins. Umræður um framtíð hússins. Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að endurbyggja húsið. Umsækjendur skili inn greinargerð um hugmyndir sínar.
8.
Frisbígolfvöllur - hugmyndir og áætlaður kostnaður
Málsnúmer 201702040
Skipulagsstjóri fór yfir málið. Samkvæmt nýsamþykktu deiliskipulagi við Tjaldsvæði er gert ráð fyrir Frisbígolfvelli á svæðinu.
Fengin hafa verið þrjú tilboð. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
9.
Yfirlýsing vegna fyrirhugaðra kaupa ábúenda á jörðinni Jaðri
Málsnúmer 201702062
Lagt fram erindi dagsett 22. febrúar frá ábúendum að Jaðri Suðursveit vegna fyrirhugaðra kaupa þeirra á jörðinni.
Á jörðinni Jaðri í Suðursveit 160130 hafa ábúendur jarðarinnar Jón Malmquist Einarsson knt.201257-5069 og Gunnhildur Elísabet Ingimarsdóttir knt. 210657-3129 haft jörðina í ábúð frá 1979 í félagi við Ingimar Bjarnason og Önnu Benediktsdóttur. Frá árinu 1997 hafa þau staðið ein að búskapnum á Jaðri. Eiga þau þar lögheimili og stunda almennan búskap, fjárbúskap. Ástand mannvirkja og jarðarinnar verður að teljast til fyrirmyndar. Fengu ábúendur umhverfisverðlaun sveitarfélagsins árið 2014. Jörðina hafa ábúendur setið vel og mælir bæjarráð með því að þeir fái jörðina keypta og vísar málinu til bæjarstjórnar.
10.
Aðalfundur Búnaðarfélags Lónmanna - Bókun
Málsnúmer 201702075
Sveitarfélagið sótti um í verkefnið Ísland ljóstengt 2017 fyrir alla staði innan sveitarfélagsins í dreifbýli sem ekki eru nú þegar tengdir ljósleiðara. Að þessu sinni fékkst ekki styrkur til lagningar ljósleiðara í Lóni en sveitarfélagið hefur fullan hug á að bæta fjarskipti í öllu sveitarfélaginu.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Góuhóf 2017
Málsnúmer 201702081
Erindi sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 27. febrúar 2017. Umsókn um tækifærisleyfi í Hofi Öræfum Góuhóf.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.