Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

803. fundur
6. mars 2017 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 193
Málsnúmer 1702012F
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 25
Málsnúmer 1702014F
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð samþykkt.
3.
Frisbígolfvöllur - hugmyndir og áætlaður kostnaður
Málsnúmer 201702040
Starfsmanni falið að ganga frá samningum við lægstbjóðanda.
4.
Fráveita: 2. áfangi fráveita Höfn
Málsnúmer 201701029
Farið yfir stöðu mála.
5.
Ósk um þátttöku sveitarfélagsins í girðingu Miðtún 11
Málsnúmer 201703003
Erindi frá eigendum Miðtúns 11 Höfn dagsett 27. febrúar 2017. Óskað er eftir þátttöku sveitarfélagsins í girðingu meðfram gangstétt og leikvelli.
Bæjarráð hafnar ósk um þátttöku í kostnaði við girðingu á grunni 1. greinar samþykktar um þátttöku Sveitarfélagsins Hornafjarðar í kostnaði við uppsetningu girðinga á móti lóðarhöfum í þéttbýli. Bæjarráð telur jafnframt að c liður 2. greinar eigi ekki við.
6.
Tjaldsvæði á Höfn - Tilboð vegna nýtingarleyfis
Málsnúmer 201611094
Drög að samningi lögð fram.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
7.
Umsögn um landskipti, Svínafells 1 Öræfum
Málsnúmer 201702088
Erindi landeigenda Svínafells í Öræfum vegna landaskipta. Erindi dagsett 29. desember 2016 en erindið barst sveitarfélaginu 20. janúar 2017 óskað er eftir að skipta fjórum lóðum út úr jörðinni. Lóðirnar hafa verið leigulóðir fram til þessa.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við landaskipti og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Samgönguáætlun 2015-2018 - skortur á fjármagni
Málsnúmer 201703016
Bæjarráð Hornafjarðar furðar sig á þeirri ákvörðun samgönguráðherra og ríkisstjórnar Íslands að fara ekki eftir samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti samhljóða í október 2016.
Í nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar, frá 10. janúar 2017 segir: "Álag á samgöngukerfið hefur vaxið mikið undanfarin ár, einkum vegna fjölgunar ferðamanna. Í því ljósi verður aukinn kraftur lagður í uppbyggingu í samgöngumálum á öllum sviðum..." Bæjarráð Hornafjarðar getur ekki með nokkru móti séð hvernig þessi orð í stjórnarsáttmálanum ríma við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ætla sér að setja 0 krónur í nýjan veg um Hornafjörð.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 gerir ráð fyrir því að 1000 milljónir verði settar í framkvæmdir árið 2017 við styttingu hringvegarins um Hornafjörð, um 12 km. Framkvæmdin mun leysa af hólmi þrjár einbreiðar brýr sem komnar eru til ára sinna. Undirbúningur þessa verkefnis hefur átt sér langan og kostnaðarsaman aðdraganda og sveitarfélagið hefur þegar afgreitt framkvæmdarleyfi Vegagerðarinnar vegna framkvæmdarinnar.
Það er mat bæjarráðs Hornafjarðar að ráðherra og ríkisstjórn fari fram í fullkomnu heimildarleysi með breytingu á forgangsröðun samgönguáætlunar án þinglegrar meðferðar. Við þetta munu Hornfirðingar ekki una.
9.
Nýr afhendingarstaður rafmagns í Öræfum
Málsnúmer 201703014
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-, skipulags- og atvinnumálanefndar.
10.
Ósk um aðstoð sveitarfélags við mat fráveituframkvæmda
Málsnúmer 201702083
Erindi frá Umhverfisstofnun dagsett 21. febrúar 2017. Unnið er að greinagerð til að gefa skýra mynd af áskorunum sveitarfélaga, sem ekki losa skólp til sjávar með hliðsjón af sértæku álagi, vernd og kröfum
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsstjóra.
11.
Styrktarsjóður EBÍ 2017
Málsnúmer 201702086
Erindi vegna umsókna í sjóðinn 2017.
Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir og finna verkefni sem hægt er að sækja um.
12.
Umsögn um frumvarp til laga um breyt. á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Málsnúmer 201703015
Bæjarráð tekur undir ábendingar Landlæknis og fjölmargra annarra aðila sem vinna að heilsueflingu og velferðarmálum sem vara við þeirri breytingu sem felst í frumvarpinu. Auk þess benda rannsóknir á að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu, meðal annars meðal barna og ungmenna. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er andvígur frumvarpinu.
Bæjarráð hvetur alþingismenn til þess að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum um verslun með áfengi.
13.
Boðun á XXXI.landsþings sambandsins
Málsnúmer 201702087
Lagt fram til kynningar. Fulltrúar sveitarfélagsins eru Ásgerður K. Gylfadóttir og Sæmundur Helgason.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer 201703023
Erindi Sýslumanns Suðurlands dagsett 6. mars 2017 lagt fram. Tímabundið áfengisleyfi í Sindrabæ umsóknaraðili Kiwanisklúbburinn Ós.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.