Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

805. fundur
20. mars 2017 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 281
Málsnúmer 1703009F
Jón Kristján fór yfir fundargerðina. Ásgerður óskaði eftir upplýsingum um stöðu vinnu við launakönnun og jafnlaunavottun. Jón Kristján greindi frá að unnið er að könnunni.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 30
Málsnúmer 1703006F
Rætt um lið 7 Framtíðarskipulag skólastarfs í Hofgarði. Ásgerður velti upp hvort ekki væri ráð að fulltrúi úr fræðslu- og tómstundanefnd sitji í samráðshópi sem stofnað var til um málið.
Í 6. lið kemur fram að Heiðar Sigurðsson hefur sagt starfi sínu lausu við Tónskólann. Bæjarráð þakkar honum fyrir vel unnin störf.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fasteignagjöld eldri borgara
Málsnúmer 201703038
Sigurður Örn Hannesson bar upp erindi fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga þar sem vakin er athygli á því að sveitarfélagið veiti lágan afslátt af fasteignasköttum. Farið var yfir samanburð á viðmiðunarupphæðum milli nokkurra sveitarfélaga. Ráðið beinir því til bæjarráðs að fara yfir reglur sveitarfélagsins um afslátt af fasteignasköttum.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2018.
4.
Gjaldskrá fyrir kattahald og önnur gæludýr í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201701015
Vísað til áframhaldandi vinnu og kostnaðargreiningu hjá starfsmönnum og til umsagnar í Heilbrigðisnefnd Austurlands.
5.
Gjaldskrá fyrir hundahald í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201612053
Vísað til áframhaldandi vinnu og kostnaðargreiningu hjá starfsmönnum og til umsagnar í Heilbrigðisnefnd Austurlands.
6.
Vöruhús endurbætur 2017
Málsnúmer 201702008
Framkvæmdaráætlun vegna úrbóta í Vöruhúsi lögð fram.
Björn fór yfir framkvæmdaáætlunina. Ásgerður gerði athugasemd við að útboðið 2017 væri ekki til umræðu á fundinum. Sæmundur greindi frá að útboðið verði tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
7.
Fundur Forsætisráðuneytis um málefni þjóðlenda
Málsnúmer 201703061
Fundarboð forsætisráðuneytisins um málefni þjóðlendna.
Lagt fram til kynningar.
8.
Athugasemdir vegna grendarkynninga víkurbraut 10
Málsnúmer 201703063
Erindi dagsett 9. mars frá Ingibjörgu Lúcíu Ragnarsdóttur vegna grenndarkynningar Víkurbraut 10
Erindinu vísað til skipulagsnefndar þar sem grenndarkynningin er til meðferðar.
9.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2017
Málsnúmer 201702036
Fundargerðir stjórnar Nýheima nr. 80, 81 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir SASS 2017
Málsnúmer 201701002
Fundargerð nr. 517 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa rekstrarleyfi Íshúsið Bistró
Málsnúmer 201703024
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.