Bæjarráð Hornafjarðar
806. fundur
27. mars 2017
kl.
16:00
-
20:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Mæta á fundinn og kynna málið
Gísli Már Vilhjálmsson og Þórdís Einarsdóttir mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn. Málinu vísað til bæjarstjóra.
2.
Menningarmálanefnd - 26
Eyrún fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 27
Árdís fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 25
Fundargerð samþykkt.
5.
Skýrsla geymslumála Menningarmiðstöðvar byggðasafn.
Eyrún fór yfir stöðu geymslumála Menningarmiðstöðvar og byggðasafns. Óskar Menningarmiðstöð eftir því að fá þann hluta Álaleiru 1 undir geymslur sem hefur hýst Matarsmiðju Matís. Umræður um fleiri mögulegar lausnir.
6.
Tjaldsvæði á Höfn - Umsóknir vegna afnotaréttar
Lögð fram drög að leigusamningi og framkvæmdaáætlun um rekstur og uppbyggingu tjaldsvæðis á Höfn. Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur starfsmanni að kynna þau fyrir Þjónustumiðstöð SKG.
7.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2017
Matthildur kynnti fjárhagsáætlun HSU Hornafirði fyrir árið 2017. Áætlun vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017 - Bygging hjúkrunarheimilis
Drög að umsókn lögð fram. Bæjarráð samþykkir að framlögð drög verði send inn sem umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra. Jafnframt þarf að útbúa stofnbúnaðaráætlun vegna byggingarinnar. Heildaráætlun gerir ráð fyrir um 1.200 m.kr. í framkvæmdina.
9.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
10.
Fráveita á Höfn - hreinsivirki
Gögn vegna útboðs á hreinsistöð lögð fram
Farið yfir útboðsgögn. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út og felur starfsmönnum að koma því í auglýsingu.
11.
Vöruhús endurbætur 2017
Farið yfir kostnaðaráætlun og tilboð vegna 1. áfanga framkvæmda í Vöruhúsi. Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð og felur starfsmönnum að ganga til samninga við verktaka.
12.
Útboð leikskóla Kirkjubraut 47
Tilboð
Eitt tilboð barst í verkið frá Karlsbrekku ehf. að upphæð 621.468.786 kr. sem er 18% yfir kostnaðaráætlun. Einnig barst frávikstilboð frá sama aðila að upphæð 594.070.199 kr. sem er 13% yfir kostnaðaráætlun. Frávikstilboð gerir ráð fyrir að afhenda hús og lóð síðar en útboðsgögn sögðu til um. Kostnaðaráætlun við útboð hljóðaði uppá 527.317.145 kr. Starfsmanni falið að ræða við tilboðsgjafa.
Kristján Guðnason, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, lagði fram eftirfarandi bókun: "Lagt var upp með viðbyggingu við leikskólann Lönguhóla fyrir 292 m.kr. í mars 2016. í dag er kostnaðaráætlun við verkið orðin 527 m.kr. og lægsta tilboð 67 m.kr. hærra. Undirritaður greiddi atkvæði gegn því að verkið yrði boðið út og mun greiða atkvæði gegn því að gengið verði til samninga um verkið. Fjölmörg önnur brýnni verkefni eru í sveitarfélaginu og kostnaður kominn langt fram úr því sem lagt var upp með."
Bæjarstóri fór yfir að við undirbúning að útboði skapaðist umræða um hvort fara ætti í endurbætur eða byggja nýjan leikskóla á öðrum stað. Samþykkt var í bæjarstjórn 10. mars 2016 fara í endurbætur og viðbyggingu við leikskólann að Kirkjubraut 47. Við þá vinnu var stuðst við rauntölur sambærilegra verka hjá sveitarfélaginu undanfarin ár á verðlagi ársins 2016. Endubætur við Lönghóla án lóðar var þá áætlaður 292 milljónir og byggin nýs leikskóla 450 milljónir og er sú tala einnig án lóðar. Í hönnunarvinnu verður til kostnaðaraáætlun sem hönnuðir hússins leggja fram 527 m.kr. í þeirri áætlun er einnig gert ráð fyrir endurbótum á lóð fyrir um 67 milljónir króna. Kostnaðaráætlun gerir því ráð fyrir að endurbætur og viðbygging kosti 460 milljónir án lóðar. Framkvæmdir ársins eru í samræmi við fjárhagsáætlun 2017.

13.
Endurnýjun á lóðaleigusamning, Ægissíða 25
Ósk um samþykki á sölu á leigurétt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
14.
Hrollaugsstaðir -gámavöllur-lóðarréttindi
Erindi vegna eignarhalds á landi umhverfis Hrollaugsstaði.
Bæjarráð telur nokkuð ljóst að Sveitarfélagið er eigandi að 2,9 ha lands umhverfis Hrollaugsstaði. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu og svara erindi.
15.
Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða í sveitarfélaginu.
Umræður um úthlutunarreglur og verð á lóðum. Bæjarráð telur að framlengja skuli niðurfellingu byggingaleyfisgjalda á tilbúnum íbúðarhúsalóðum. Lagt til að byggingaréttur á athafnalóðum útbæ verði kostnaðarmetinn svo hægt sé að ákvarða verð lóða.
16.
Umsókn Íbúðarfélags Hornafjarðar Hses um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða.
Erindi dagsett 25. mars 2017 ósk um hækkun stofnframlags vegna byggingar leiguíbúða.
Bæjarráð telur mikilvægt að hefja hið fyrsta byggingu almennra leiguíbúða. Bæjarráð telur að lög um almennar leiguíbúðir og stofnframlög ættu að gera ráð fyrir aðlögun stofnframlaga beggja aðila, ríkis og sveitarfélags, í samræmi við raunkostnað.
Bæjarstjóra falið að fara yfir áhrif málsins á fjárhagsáætlun og leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2017.
Bæjarstjóra falið að fara yfir áhrif málsins á fjárhagsáætlun og leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2017.
17.
Umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 120. mál
Bæjarráð felur fjármálastjóra að fara yfir málið og senda inn umsögn.
18.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 38
Umsókn Róberts M. Gunnarssonar um lóð að Hafnarbraut 38 lögð fram.
Lóðinni hefur þegar verið úthlutað og því ekki mögulegt að endurúthluta henni að svo stöddu. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
19.
Slóðir og smalavegir
Erindi Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum dagsett 20. mars 2017. Áskorun um að nýta sér eftir fremsta megni það fjármagn sem fáanlegt er úr styrktarsjóði til viðhalds og endurbóta á þeim slóðum sem eru í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið hefur sótt um í þá sjóði sem mögulegt er að fá fjármagn úr til viðhalds og endubóta á slóðum innan sveitarfélagsins. Það er engu að síður ljóst að þeir fjármunir duga skammt miðað við þá miklu umferð sem er orðin um þessa slóða. Mikil fjölgun ferðamanna hefur stóraukið akstur um þessa slóða sem eru á engan hátt byggðir fyrir alla þá umferð sem um þá fer. Mikilvægt er að finna leiðir til að aukið fjármagn fáist til endurbóta á þeim.