Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

807. fundur
3. apríl 2017 kl. 14:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 194
Málsnúmer 1703013F
Björn Ingi fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
2.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Gerð hefur verið fjárnámskrafa í Hafnarbraut 27 á grunni svokallaðs gerðardóms sem sveitarfélagið hefur áður andmælt að sé lögmætur og standist skilyrði gerðardómslaga.
Bæjarráð véfengir að krafa Hólabrekku ehf. eigi rétt á sér. Bæjarráð felur starfsmönnum að ráðfæra sig við lögfræðing um næstu skref.
3.
Úttekt á tölvu og fjarskiptamálum
Málsnúmer 201703113
Björn Ingi gerði grein fyrir úttektinni og stöðu verksins. Bjarni Júlíusson hjá Framnes ehf. hefur verið fenginn sem ráðgjafi við verkefnið. Bæjarráð heimilar að farið verði í útboð á tölvu- og fjarskiptamálum sveitarfélagsins.
4.
Matís og matarsmiðjan
Málsnúmer 201501030
Bæjarráð vísar málinu til atvinnumálanefndar og felur henni að ræða við hlutaðeigandi aðila.
5.
Erindi Vatnajökulsþjóðgars vegna Hrollaugsstaða
Málsnúmer 201704001
Bæjarstjóri upplýsti um áhuga Vatnajökulsþjóðgarðs á að leigja hluta Hrollaugsstaða undir starfsfólk í sumar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða málið við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs.
6.
Rafrænt útboðskerfi
Málsnúmer 201703138
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsókn um lóð Fákaleira 11
Málsnúmer 201703119
Umsókn Höllu Beic Sigurðardóttur um lóð að Fákaleiru 11
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar til umsækjanda. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Umsókn um lóð Hagaleira 8
Málsnúmer 201703134
Umsókn Hönnu Guðrúnar Kolbeinsdóttur um lóð að Hagaleiru 8
Vegna breytinga á deiliskipulagi er Hagaleira 8 nú Hagaleira 10. Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar að Hagaleiru 10 til umsækjanda.
9.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997.
Málsnúmer 201703132
Breytingar á A deild Brúar
Lagt fram til kynningar.
10.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201501018
Nú liggur fyrir ákvörðun ríkisins að verja 200 milljónum í framkvæmdir við nýjan veg yfir Hornafjörð. Samgönguáætlun 2015 til 2018 gerði ráð fyrir að til framkvæmdarinnar yrði varið 1.000 milljónum árið 2017 og 1.000 milljónum á árinu 2018 og að áframhald yrði síðan á framkvæmdum 2019. Bæjarráð fagnar því að verkið muni fá framgang en harmar að ekki skuli farið eftir samþykktri samgönguáætlun varðandi framlög. Það lítur því út fyrir að framkvæmdahraði verði ekki eins og fram kemur í samgönguáætlun 2015 til 2018.

Bæjarráð leggur mikla áherslu á að þessar langþráðu samgöngubætur verði framkvæmdar eins hratt og mögulegt er. Til að verkið verði eins hagkvæmt og mögulegt er telur bæjarráð ráðlegt að framkvæmdin verði boðin út í heild. Gera má ráð fyrir að með þeim hætti nýtist þær 200 milljónir sem ætlaðar eru í verkið á þessu ári betur.
11.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2016
Málsnúmer 201703135
Sigurjón Örn Arnarson og Magnús Jónsson endurskoðendur sveitarfélagsins frá KPMG fóru yfir ársreikning 2016 og drög að skýrslu endurskoðenda.
Bæjarráð vísar ársreikningi 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.