Bæjarráð Hornafjarðar
810. fundur
24. apríl 2017
kl.
17:00
-
19:15
Í Hrollaugsstöðum
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 31
Farið yfir fundargerð vallarstjórnar Sindravalla og viðhaldsáætlun. Framtíðarskipulag skólastarfs í Hofgarði rætt ásamt starfsmannamálum í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 27
Farið yfir fundargerð. Upplýsingaskiltamál í sveitarfélaginu rædd. Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfisnefnd - 28
Vísað í umfjöllun í lið 4. Fundargerð samþykkt.
4.
Útboð á sorphirðingu- og urðun
Rætt um flokkun sorps og magnið sem sent er til urðunar í Lóni með tilliti til samnings þar um. Einnig rætt um fyrirkomulag sorphirðu í sveitunum. Farið yfir niðurstöðu útboðs sorphirðu og urðunar. Lægsta boð kom frá Íslenska gámafélaginu en velja þarf á milli leiðar A og B samkvæmt útboðsgögnum. Farið yfir kosti og galla leiðanna. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Fyrirspurn um húsnæði Matís, Álaleiru
Matís hefur sagt upp húsaleigusamningi að Álaleiru 1 þar sem matarsmiðjan hefur verið til húsa. Staðsetning smiðjunnar er til umfjöllunar í atvinnumálanefnd. Á síðustu árum hefur sambúð matarsmiðju og geymslu menningarminja oft verið til umræðu og ekki talin heppileg auk þess sem skortur er á geymsluhúsnæði hjá sveitarfélaginu. Bæjarráð er þeirrar skoðunar að Álaleiran verði nýtt sem geymsluhúsnæði þegar matarsmiðjan fer þaðan. Páll Róbert sat hjá við afgreiðslu málsins.
6.
Erindi Vatnajökulsþjóðgars vegna Hrollaugsstaða
Farið yfir erindi frá Vatnajökulsþjóðgarði um að leigja efri hæð skólahúsnæðisins í Hrollaugsstöðum. Á fyrrnefndum fundi með íbúum Suðursveitar og Mýra kom fram hugmynd um að auglýsa herbergin til leigu fyrir starfsfólk ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Bæjarráð telur slíka hugmynd kalla á umtalsvert meira utanumhald og breytingar á húsnæðinu en til stendur að gera. Bæjarstjóra falið að ræða við Vatnajökulsþjóðgarð um tímabundna leigu á skólahúsnæðinu. Samhljómur var á milli bæjarráðs og íbúa á áðurnefndum fundi að nýta félagsheimilið undir samkomur og viðburði fyrir íbúa.
7.
Þorgeirslundur: Fyrirhuguð aðkoma og göngustígar
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
8.
uppbygging fjarskiptainnviða
Lagt fram til kynningar.
9.
Ósk um styrk úr Styrkvegasjóð 2017
Lagt fram til kynningar.