Bæjarráð Hornafjarðar
811. fundur
2. maí 2017
kl.
13:00
-
16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 28
Árdís fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 195
Umræður um áætlaða viðhaldsdýpkun í sumar. Klára þarf lögn fráveitulagna áður en hægt verður að fara í dýpkunarframkvæmdir.
Vignir og Björn Ingi greindu frá ferð þeirra á Ocean Business Southamton 2017. Þar var aðili sem er að þróa og selja radarbúnað sem staðsettur er í landi. Slíkur búnaður mælir umhverfishreyfingar og gæti veitt mikilvægar upplýsingar um dýpi á Grynnslum. Gögn hafa verið send til skoðunar og greiningar hjá viðkomandi aðila.

3.
Áskorun um skólamál í Öræfum
Móttekið erindi frá foreldrum barna í leik- og grunnskóla í Öræfum þar sem kallað er eftir stefnu bæjaryfirvalda um málefni Öræfa í heild hvað varðar skólamál, húsnæðismál og almenna samfélagsþróun.
Bæjarráð þakkar innsent erindi. Þeir þættir sem nú þegar eru komnir í farveg eru eftirfarandi:
Auglýst hefur verið eftir starfsfólki við leik- og grunnskólann í Hofgarði og lítur mönnun þar vel út fyrir næsta skólaár.
Varðandi húsnæðismál hefur verið unnið deiliskipulag fyrir íbúðabyggð við Hofgarð, nánar tiltekið í Borgartúni. Sveitarfélagið hefur fengið úthlutað einni lóð og stefnir að byggingu á henni.
Jafnframt stefnir bæjarráð að því að halda opinn íbúafund í Hofgarði fyrir sumarleyfi.

4.
Starfsmannamál leik- og grunnskóla Hornafjarðar
Ragnhildur fór yfir stöðuna.
Rætt um líkan við útreikning kennslustundafjölda Grunnskóla Hornafjarðar fyrir næsta skólaár, mönnun skólans og verkefni sem skólinn sinnir rædd í tengslum við það.
Rætt um líkan við útreikning kennslustundafjölda Grunnskóla Hornafjarðar fyrir næsta skólaár, mönnun skólans og verkefni sem skólinn sinnir rædd í tengslum við það.
5.
Ósk um endurnýjun á Mörkum á Hrollaugsstöðum
Bæjarráð samþykkir að kaupa mörk og felur forstöðumanni íþróttamannvirkja að afla tilboða. Kostnaður af þessu verður tekinn af óráðstöfuðu í samráði við fjármálastjóra.
6.
Útboð: Hreinsivirki á Höfn
Eitt tilboð barst í verkið ásamt einu frávikstilboði frá Mikael ehf. Kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir 138.337.272 kr. í verkið. Aðaltilboð er kr. 201.280.221 (45% yfir kostn.áætlun) og frávikstilboð kr. 192.938.538 (39% yfir kostn.áætlun).
Bæjarráð telur tilboðin vera hátt yfir kostnaðaráætlun og felur starfsmönnum að ræða við tilboðsgjafa.
Bæjarráð telur tilboðin vera hátt yfir kostnaðaráætlun og felur starfsmönnum að ræða við tilboðsgjafa.
7.
Ósk um lagfæringu á aðkoma að Heppuvegi 2a
Bæjarráð tekur undir áhyggjur málsaðila um aðgengi og umhverfi við Heppuveg 2a og felur starfsmönnum að koma með tillögur til úrbóta.
8.
Umsókn um lóð, Hafnarbraut 38
Bæjarráð samþykkir framlengingu úthlutunar um þrjá mánuði þar sem byggingaráform hafa verið staðfest.
9.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2022
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálastjóra og felur honum að koma með tillögu að umsögn.
10.
Stefna frá Ice Lagoon ehf á Sveitarfélagið Hornafjörð
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla lögfræðiálits á niðurstöðu dómsins.
11.
Kæra Íslenska gámafélagsins á útboð sorphirðu og sorpurðun.
Tekin fyrir kæra Íslenska gámafélagsins á útboð á sorphirðu og urðun. Kæran snýr að stöðvun á útboðsferlinu og að frávikstilboðum í verkið verði hafnað.
Í útboðsgögnum er bent á ÍST30 staðal (Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir). Samkvæmt gr. 1.2.9 um frávikstilboð segir: Tilboð sem leysir þarfir kaupandans á annan hátt en gert er ráð fyrir í tæknilegri lýsingu útboðsgagna og uppfyllir jafnframt lágmarkskröfur þeirra.
Þrjú frávikstilboð bárust í verkið frá Funa ehf. Þar sem þau uppfylla ekki skilmála útboðsgagna varðandi alla verkþætti og geta þau ekki talist gild frávikstilboð og hafa ekki verið til skoðunar.

12.
Sala á Höllu Sæm SF-023
Bæjarráð ætlar ekki að nýta forkaupsrétt og felur bæjarstjóra að tilkynna það.
13.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2017
Fundargerð stjórnar Nýheima nr.82 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.