Bæjarráð Hornafjarðar
812. fundur
8. maí 2017
kl.
16:00
-
18:51
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 26
Matthildur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 27
Fundargerð samþykkt.
3.
Þjóðlendur í sveitarfélaginu Hornafirði
Umfjöllun í atvinnumálanefnd og umhverfisnefnd einnig þeir fjármunir sem sveitarfélagið hefur sett í þjóðlendu við Fjallsárlón.
Bæjarráð gagnrýnir hve stuttur fyrirvari er gefin til umsagnar vegna svo viðamikils máls, en frestur er til 14. maí 2017. Bæjarráð leggur áherslu á að haft verði samráð við hagsmunaaðila svæðisins vegna fyrirhugaðra áforma, t.d. bændur sem hafa nýtingarrétt á svæðunum sem verið er að óska umsagnar um. Sveitarfélagið hefur með samþykki forstætisráðuneytisins gert skipulag af svæðinu við Fjallsárlón og samning við rekstaraðila á grunni þess til 12 ára. Sveitarfélagið hefur lagt í nokkrar framkvæmdir á svæðinu til uppbyggingar á grunni skipulagsins og áætlað að þeir fjármunir skili sér til baka í gegnum leigutekjur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsætisráðuneytið um þessi mál.
Málinu vísað til umhverfisnefndar og atvinnumálanefndar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsætisráðuneytið um þessi mál.
Málinu vísað til umhverfisnefndar og atvinnumálanefndar.
4.
Hrollaugsstaðir - lok á leigusamning
Bæjarráð samþykkir að ganga frá lokum á leigusamningi samkvæmt framlögðum gögnum og felur starfsmönnum að ganga frá málinu við fráfarandi leigutaka.
5.
Kæra Íslenska gámafélagsins á útboð sorphirðu og sorpurðun.
Kæran hefur verið dregin til baka.
6.
Útboð á sorphirðingu- og urðun
Kristján Guðnason vék af fundi undir þessum lið.
Ásgerður K. Gylfadóttir var í síma.
Bæjarráð hefur farið yfir tilboðin sem bárust vegna sorphirðingu og urðunar, sjá fundargerð bæjarráðs nr.808 10. apríl s.l.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er Íslenska Gámafélagið ehf.

7.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Sæmundur Helgason vék af fundi undir þessum lið. Ragnheiður Hrafnkelsdóttir tók sæti á fundinum.
Ragnhildur fór yfir niðurstöður greiningarvinnu vegna bókunar 1 í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskóla kennara. Lagði fram drög að umbótaáætlun fyrir Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólann í Hofgarði. Bæjarráð samþykkir framlögð drög.

8.
Ósk um styrk vegna frístundaskóla
Páll Róbert og Kristján véku af fundi undir þessum lið. Bryndís B. Hólmarsdóttir tók sæti á fundinum. Ásgerður Gylfadóttir tók þátt í gegnum síma.
Ragnhildur gerði grein fyrir hugmyndinni að stofnun frístundaskóla. UMF Sindri óskar eftir 1.300 þkr. viðbótarfjárframlagi vegna verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu með styrk sem nemur upphæð tómstundastyrks á hvern þátttakanda en að hámarki 1.300 þkr. samtals.

9.
Staða sveitarsjóðs 2017
Fjármálastjóri fór yfir stöðu bæjarsjóðs. Staðan er í samræmi við áætlun.
10.
Vírdós tónlistarhátíð
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 115 þkr. sem verður tekin af óráðstöfuðu.
11.
Umókn um styrk - Austfjarðartröllið 2017
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 100 þkr. sem tekið verður af óráðstöfuðu.
12.
Tillögur stjórnar Búnaðarsambands A-Skaft um vinnuhætti vegna refa- og minkaveiða og fjallskil í SVH
Bæjarráð vísar erindinu til atvinnumálanefndar annars vegar og til skipulagsstjóra hins vegar.
13.
Ísland ljóstengt 2017 - Umsókn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála. Aðeins hafa 54 aðilar af 122 tilkynnt um þátttöku í ljósleiðaralagningu í Nesjum og á Mýrum. Bæjarráð hvetur þá sem ekki hafa tilkynnt um þátttöku að gera það hið fyrsta. Forsenda verkefnisins er góð þátttaka íbúa.
14.
Internetsamband að Horni Nesjum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Fjarskiptasjóður hefur samþykkt aðkomu að stofnkostnaði vegna þessa. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga vegna þessa.
15.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um auglýsingaskilti
Bæjarstjóri fór yfir vinnu frá því að málið var síðast til umræðu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fá álit lögfræðings áður en reglurnar verða lagðar fram til samþykktar.
16.
Ársskýrsla samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016
Lagt fram til kynningar.
17.
Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf 2017
Lagt fram til kynningar.
18.
Endurnýjun samninga slægju og beitilanda á Höfn
Farið yfir drög að auglýsingu um beitarhólf og sláttusvæði í landi sveitarfélagsins. Skipulagsstjóra falið að auglýsa umrædd svæði.