Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

819. fundur
10. júlí 2017 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 284
Málsnúmer 1706010F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 28
Málsnúmer 1706012F
Farið yfir fundargerð. Bæjarráð samþykkir 60% þátttöku í kostnaði vegna sjúkrakallkerfis á dvalarheimilið. Áætlaður hlutur sveitarfélagsins er um 600 þkr. sem tekið verður af óráðstöfuðu.
Einnig hefur verið samþykkt að sótt verði um styrk frá framkvæmdasjóði aldraðra vegna byggingar hjúkrunarheimilis. Bæjarráð staðfestir áður framkominn vilja bæjarstjórnar um þátttöku sveitarfélagsins í því verkefni.
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 196
Málsnúmer 1706007F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
4.
Beiðni um kaup á bifreið fyrir Heimaþjónustudeild.
Málsnúmer 201707021
Nissan Note bifreið er biluð áætlaður viðgerðarkostnaður er talsverður. Óskað er eftir heimild til að endurnýja bifreiðina frekar en kosta til viðgerðar. Deildin hefur vaxið umtalsvert að undanförnu og nauðsynlegt að hún hafi yfir tveim bifreiðum að ráða til að sinna skjólstæðingum sínum. Óskað er eftir heimild til að fjárfesta í Nissan Leaf rafmagnsbíl.
Bæjarráð samþykkir kaup á rafmagnsbifreið af gerðinni Nissan Leaf fyrir heimaþjónustudeild. Starfsmönnum falið að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun þar sem fjárhæð verði tekin að rekstrarniðurstöðu ársins.
5.
Útboð fráveituframkvæmdir Nesjahverfi
Málsnúmer 201702049
Auglýst var eftir tilboðum í fráveituframkvæmdir í Nesjahverfi frá 15. til 29. júní. Opnun tilboða fór fram 29. júní. Eitt tilboð barst í verkið frá Rósaberg ehf. uppá 33.012.391 krónur. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 25.221.500 krónur. Tilboðið er því 31% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar tilboðinu og felur starfsmönnum að skoða möguleika í stöðunni. Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að sá hluti götunnar sem jarðvegsframkvæmdum er lokið verði malbikaður og frágengin.
6.
Nýtt götuheiti vegna deiliskipulags Holt á Mýrum
Málsnúmer 201706095
Deilskipulag að Holti tók gildi 13. júní 2016 gert er ráð fyrir einni götu í deiliskipulaginu. Samkvæmt lögum nr. 22 2015 Lög um örnefni leggur sveitarfélagið fram tillögu að nafni og óskar eftir áliti örnefnanefndar um nafnið áður en það er endanlega ákveðið.
Farið yfir hugmyndir að götuheiti. Bæjarráð leggur til að gatan heiti Smiðsholt og felur starfsmönnum að óska álits örnafnanefndar fyrir því.
7.
Endurbætur á girðingu kirkjugarði að Brunnhól
Málsnúmer 201706049
Samkvæmt lögum nr. 36 1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu á sveitarfélagið að koma að viðhaldi kirkjugarða.
Lagt fram til kynningar minnisblað skipulagsfulltrúa vegna nauðsynlegra endurbóta girðingar umhverfis kirkjugarðinn. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
8.
Endurbætur á girðingu kirkjugarði í Stafafelli
Málsnúmer 201706050
Samkvæmt lögum nr. 36 1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu á sveitarfélagið að koma að viðhaldi kirkjugarða.
Lagt fram til kynningar minnisblað skipulagsfulltrúa vegna nauðsynlegra endurbóta girðingar umhverfis kirkjugarðinn. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
9.
Ósk um land fyrir hótelbyggingu
Málsnúmer 201707025
Erindi dagsett 7. júlí frá Marina Travel ehf. þar sem óskað er eftir lóð fyrir hótelbyggingu vestan við Þorgeirslund.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
10.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Hagi 2
Málsnúmer 201706070
Eigendur Haga II hafa óskað eftir breytingu á aðalskipulagi vegna áforma um áframhaldandi rekstur gistiþjónustu á bænum. Ekki er um aukningu gesta að ræða heldur óbreyttan leyfilegan fjölda gesta.
Þar sem reksturinn helst óbreyttur telur bæjarráð að málsmeðferð vegna aðalskipulagsbreytingar verði skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstjóra falið að vinna uppdrátt vegna breytingar.
11.
Ósk um breytingu á skipulagi Bjarnarhól 8 og 9
Málsnúmer 201707026
Bæjarráð vísar erindinu til meðferðar hjá skipulagsnefnd og felur skipulagsstjóra að afla frekari gagna vegna vinnslu málsins.
12.
Ósk um umsögn um að Brunnavellir 1 verði gerðir að lögbýli
Málsnúmer 201707007
Erindi Guðrúnar Sælín Sigurjónsdóttur þar sem óskað er eftir umsögn og samþykki fyrir stofnun Brunnavalla 1 sem lögbýli.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum til að geta gefið umsögn.
13.
Ósk um umsögn vegna fyrirhugaðrar flugeldasýningu á Jökulsárlóni
Málsnúmer 201707014
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
14.
Staðsetning rafhleðslustöðva í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201707018
Erindi frá Orka náttúrunnar um uppsetningu á þrem rafhleðslustöðvum í sveitarfélaginu. Höfn, Freysnes og Jökulsárlóni.
Bæjarráð fagnar uppbyggingu rafhleðslustöðva í sveitarfélaginu. Bæjarráð bendir á að leita þarf leyfis lóðarhafa á hverjum stað til uppsetningar rafhleðslustöðva.
15.
Staða sveitarsjóðs 2017
Málsnúmer 201705036
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs miðað við lok júní. Staða málaflokka er í samræmi við áætlun en framkvæmdir eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir.
16.
Stefna frá Ice Lagoon ehf á Sveitarfélagið Hornafjörð
Málsnúmer 201506043
Farið yfir niðurstöðu héraðsdóms.
17.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Kynnt drög að samkomulagi vegna lokunar Sambýlisins að Hólabrekku. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
18.
Samningur um tölvuþjónustu
Málsnúmer 201707023
Þekking tók við rekstri tölvukerfis sveitarfélagsins 1. júlí.
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála.
19.
Friðlýsing jarðarinnar Fell
Málsnúmer 201707020
Ríkissjóður neytti forkaupsréttar á jörðinni Felli fyrr i vetur á grundvelli ákvæða ínáttúruverndarlögum. Í framhaldi af því var Vatnajökulsþjóðgarði falin umsjón með jörðinni. Umhverfis- og Auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögn og afstöðu sveitarfélagsins til þess að jörðin Fell verði friðlýst sem hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
Bæjarráð samþykkir friðlýsingu jarðarinnar Fells sem hluta af Vatnajökulsþjóðgarði. Bæjarráð leggur áherslu á að tryggt verði fjármagn til uppbyggingar og reksturs náttúruperlunnar sem svæðið umhverfis Jökulsárlón er.
20.
Þjóðlendur í sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201705041
Vísað er í erindi forsætisráðuneytisins þar sem óskað er eftir afstöðu og samþykkis sveitarfélagsins fyrir að eftitaldar þjóðlendur verði friðlýstar sem hluti af Vatnajökulsþjóðgarðs. Ærfjall (nr.5), Fjall (nr.6), Breiðamörk (nr.7), Vestanvert Jökulsárlón (nr.8), Veðurárdalssvæðið norðvestan Hvítingsdals (nr.9), Hafrafell (nr.10) og landsvæði framan við Hafrafell (h) sbr. kort óbyggðanefndar dagsett 11. október 2016.
Erindið var tekið fyrir í bæjarráði 8. maí s.l. og bæjarstjóra falið að ræða áhrif friðunar á einkanýtingarrétt og samninga sem gerðir hafa verið á svæðinu. Samkvæmt svari umhverfisráðuneytisins hefur friðlýsing og að svæðið verði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði ekki til með að hafa áhrif á réttindi aðila á svæðinu né þá samninga sem gerðir hafa verið að öðru leiti en að Vatnajökulsþjóðgarður verður samningsaðili í stað sveitarfélagsins. Jafnframt staðfestir ráðuneytið að sveitarfélaginu verði greiddur útlagður kostnaður vegna uppbyggingar á svæðinu. Bæjarráð leggur áherslu á að uppbyggingu á svæðinu verði haldið áfram með myndarlegum hætti.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að landsvæðið verði friðlýst sem hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
21.
Samningar um afnotarétt innan þjóðlendu
Málsnúmer 201707017
Erindi frá forsætisráðuneyti þar sem óskað er eftir að gerðir verði samningar um afnotarétt innan þjóðlendna innan sveitarfélagsins. Um er að ræða lóðaleigusamning sem afmarkar svæði/lóð með landnúmeri og fastanúmer.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu.
22.
Fundargerðir SASS 2017
Málsnúmer 201701002
Fundargerð nr.521.
Fundargerð lögð fram til kynningar.