Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

823. fundur
28. ágúst 2017 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 285
Málsnúmer 1708011F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnumálanefnd - 30
Málsnúmer 1707001F
Farið yfir fundargerð. Árdís gerði grein fyrir fyrirhugaðri vinnu við markaðs- og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið. Árdís greindi frá heimsókn nefndarinnar í húsnæði Sláturfélagsins Búa þar sem sveitarfélaginu hefur verið boðið að leigja vestur hluta hússins.
Bæjarráð vekur athygli á að gönguleiðin Mýrajöklar verður formlega opnuð fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17 í Haukafelli.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 34
Málsnúmer 1708006F
Farið yfir fundargerð. Ragnhildur greindi frá fyrirkomulagi skólastarfs í Hofgarði í vetur. Þar sem ekki náðist að manna allar kennarastöður var ákveðið að gera samning við Tröppu ehf. um fjarkennslu á unglingastigi.
Fundargerð samþykkt.
4.
Reglur um skráningu í skólamáltíðir
Málsnúmer 201708037
Bæjarráð samþykkir reglur um skráningu í skólamáltíðir.
5.
Reglur vegna grunnskólavistar utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201708048
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur vegna grunnskólavistar utan lögheimilissveitarfélags.
6.
Reglur vegna leikskólavistar utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201708049
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur vegna leikskólavistar utan lögheimilissveitarfélags.
7.
Malbikunarframkvæmdir 2017
Málsnúmer 201701050
Malbikunarframkvæmdir voru boðnar út sameiginlega með Vegagerðinni. Áætlaður verkkostnaður er kr. 140.030.000. Tvö tilboð bárust í verkið, þ.e. frá KM Malbikun ehf. kr 96.129.885 (68,6% af kostnaðaráætlun) Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas ehf. kr. 98.922.805 (70,6% af kostnaðaráætlun). Tilboði lægstbjóðanda, KM Malbikun, hefur verið tekið. Heildarkostnaður sveitarfélagsins í verkinu er 77 mkr. Hluti af því er í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu og kemur sá kostnaður til frádráttar. Starfsmönnum falið að auglýsa komu malbikunarflokks.
8.
Umsókn um lóð F við Óslandsveg
Málsnúmer 201708061
Bæjarráð fjallaði um erindið. Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi komi á fund ráðsins til að kynna hugmyndir sínar að framkvæmdum þar sem sótt er um þrjár stórar athafnalóðir, lóð D, E og F við Óslandsveg.
9.
Umsókn um lóð D við Óslandsveg
Málsnúmer 201708063
Bæjarráð fjallaði um erindið. Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi komi á fund ráðsins til að kynna hugmyndir sínar að framkvæmdum þar sem sótt er um þrjár stórar athafnalóðir, lóð D, E og F við Óslandsveg.
10.
Umsókn um lóð E við Óslandsveg
Málsnúmer 201708062
Bæjarráð fjallaði um erindið. Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi komi á fund ráðsins til að kynna hugmyndir sínar að framkvæmdum þar sem sótt er um þrjár stórar athafnalóðir, lóð D, E og F við Óslandsveg.
11.
Tilnefning í skólanefnd FAS
Málsnúmer 201708071
SASS hefur leitað til sveitarfélagsins vegna tilnefningar sveitarfélaganna í skólanefnd FAS. Bæjarráð tilnefnir Evu Björk Harðardóttur og Sæmund Helgason sem aðalmenn og Ásgerði K. Gylfadóttur og Gunnar Þorgeirsson sem varamenn.