Bæjarráð Hornafjarðar
829. fundur
9. október 2017
kl.
16:00
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 32
Árdís fór yfir fundargerðina.
1. 201709115 - Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Í kafla 4.3 í lýsingunni kemur fram að mynda eigi stýrihóp með fulltrúum úr skipulagsnefnd og atvinnumálanefnd. Bæjarráð telur heppilegra að starfsmenn nefndanna haldi utan um vinnuna í stað þess að mynda stýrihóp. Bæjarráð mælist einnig til þess að leitað verði eftir umsögn hjá utanaðkomandi aðilum svo sem fagaðila frá Nýheimum Þekkingarsetri og hagsmunaaðilum ferðaþjónustunnar.
Fundargerð samþykkt.

2.
Umhverfisnefnd - 33
Bryndís fór yfir fundargerð og kynnti drög að umferðaröryggisáætlun sem stefnt er að að verði tilbúin í desember nk.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Skipulagsnefnd - 32
Gunnlaugur fór yfir fundargerðina.
11. 201710009 - Fyrirspurn um skipulag, Hafnarbraut 38
Bæjarráð óskar eftir að lóðarhafi komi á fund bæjarráðs næsta mánudag og felur skipulagsstjóra að boða viðkomandi á fundinn.

4.
Náttúruhamfarir í Sveitarfélaginu Hornafirði september 2017
Bæjarstjóri greindi frá að unnið er að samantekt á því tjóni sem náttúruhamfarirnar ullu. Bæjarráð tekur undir bókanir atvinnumálanefndar og umhverfisnefndar.
5.
Sorphirða og sorpeyðing: gjaldskrá
Farið yfir gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
6.
Uppbygging á grunni deiliskipulags útbæ Höfn - Viljayfirlýsing
Lagt fram erindi frá Heilsuvernd ehf. vegna viljayfirlýsingar og óskað eftir framlengingu hennar út október. Einnig er óskað eftir fundi með bæjarstjórn fimmtudaginn 12. október kl. 15. Bæjarráð samþykkir erindið.
7.
Deiliskipulag skotsvæði Höfn
Á fundi skipulagsnefndar var lagt til að vegur að skotsvæði á Höfn fengi nafnið Bergárvegur. Bæjarráð samþykkir nafnið.
8.
Fjárhagsáætlun 2018
Fjármálastjóri fór yfir drög að forsendum fjárhagsáætlunar 2018, tekjuáætlun og rekstrarreikning. Bæjarráð samþykkir að vísa römmum til vinnslu hjá forstöðumönnum.
9.
Skuggakosningar 12.október 2017
Bæjarráð samþykkir styrk allt að fjárhæð 60 þ.kr. sem tekið verður af óráðstöfuðu.
10.
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 28.okt. 2017
Kjörskrárgögn lögð fram. Bæjarráð samþykkir framlögð stofngögn.
11.
Tilnefning varamanna í svæðisráð
Lagt fram erindi um tilnefningu varamanna. Tilnefning verður lögð fram á næsta fundi bæjarráðs.