Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

830. fundur
16. október 2017 kl. 16:00 - 18:26
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingarleyfi, Hafnarbraut 38
Málsnúmer 201709464
Lóðarhafar mættu á fund bæjarráðs og gerðu grein fyrir stöðu verkefnisins. Rætt um fjölda bílastæða við lóð og möguleika á að fella út byggingareit B2 til að koma fyrir frekari bílastæðum. Lóðarhafar tóku jákvætt í þessa hugmynd. Einnig var rætt um möguleika á að byggja umrædda byggingu á annarri lóð innan sveitarfélagsins. Lóðarhafar töldu sig hafa fjárfest mikið í núverandi staðsetningu. Lánsloforð miðast við þessa staðsetningu og því ekki fýsilegur kostur að breyta því.
Fram kom á fundinum að enn á eftir að skila inn nauðsynlegum teikningum og greinargerð svo framkvæmdir geti hafist. Bæjarráð ítrekar að þær teikningar og greinargerð þurfi að berast fyrir lok dags 25. október 2017 þar sem veittur frestur til að hefja framkvæmdir er þegar liðinn.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 287
Málsnúmer 1710005F
Jón Kristján fór yfir fundargerðina. Rætt um framtíðarplön fyrir Víkurbraut 24.
Fundargerð samþykkt.
3.
Akurey
Málsnúmer 201709447
Farið yfir samantekt starfsmanna um ástand skipsins. Ljóst er að ástandið er mjög slæmt og mikill fúi kominn í skrokk skipsins. Búið er að fjarlægja stiga og loka stærstu götum. Bæjarráð bendir á að skipið er ekki öruggt til umgengni í núverandi ástandi. Málinu er vísað til menningarmálanefndar til frekari skoðunar.
4.
Útboð: Fráveita 2. áfangi á Höfn
Málsnúmer 201710053
Björn Ingi fór yfir verklýsingu á útboði 2. áfanga uppbyggingar fráveitu á Höfn. Áætluð verklok verða fyrir lok maí 2018. Bæjarráð heimilar að bjóða verkið út.
5.
Útboð: Fráveita í Nesjahverfi
Málsnúmer 201710054
Björn Ingi fór yfir verklýsingu á fráveitu í Nesjum. Áætluð verklok verða fyrir lok maí 2018. Bæjarráð heimilar að bjóða verkið út.
Rætt um samstarfsverkefni íbúa hverfisins og sveitarfélagsins sem hugmynd kom að á bæjarstjórnarfundi 12. október sl. Verkefnið verður sett á framkvæmdaáætlun 2018 og stefnt að því að það hefjist með vorinu 2018. Bæjarráð leggur til að stofnaður verði hópur starfsmanna og íbúa í Nesjahverfi sem vinni hugmyndir að verkefninu.
6.
Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara sept. 2017
Málsnúmer 201710017
Björn Ingi fór yfir stöðu mála. Greindi frá að unnið er að samantekt á tjóninu í heild í sýslunni. Samantektin verður kynnt í bæjarráði þegar hún er tilbúin.
Bæjarráð leggur áherslu á að bæta þurfi það mikla tjón sem ljóst er að varð við náttúruhamfarirnar í september sl. og telur ekki eðlilegt að sveitarfélagið eða íbúar beri ein það tjón.
7.
Landsmótsflatir
Málsnúmer 201710034
Bæjarstjóri fór yfir vinnu sem í gangi er vegna landsmótsflata og tillögur að svæði á Leirunni fyrir íþróttaiðkun.
8.
Ósk um styrk Þórdís Imsland
Málsnúmer 201710044
Bæjarráð þakkar erindið og bendir á að í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018 verður auglýst eftir styrkumsóknum til bæjarráðs og menningarmálanefndar. Bæjarráð hvetur umsækjanda að sækja um þegar auglýsing birtist.
9.
ósk um endurnotkun steypueininga á Breiðamerkursandi
Málsnúmer 201710050
Erindi frá starfsmönnum Vatnajökulsþjóðgarðs um að setja upp að nýju ljósmyndir á steypueiningar sem staðsettar yrðu á Breiðamerkursandi.
Bæjarráð telur hugmyndina áhugaverða. Einhverjar steypueiningar eru í notkun. Bæjarstjóra falið að fara betur yfir málið og svara erindinu.
10.
Tilnefning varamanna í svæðisráð
Málsnúmer 201710008
Erindi frá Umhverfisráðuneytinu þar sem óskað er eftir tilnefningu varamanna fyrir fulltrúa sveitarfélagsins í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði.
Bæjarráð tilnefnir Lovísu R. Bjarnadóttur, Hjördísi Skírnisdóttur og Friðrik Jónas Friðriksson.
11.
Aðalfundur HAUST 2017 1. Nóv
Málsnúmer 201710045
Fundarboð á aðalfund HAUST Vopnafirði 1. nóvember
Bæjarstjóri fer með atkvæði sveitarfélagsins.
12.
Fundargerðir HAUST 2017
Málsnúmer 201709053
Fundargerði 136 og 137 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.