Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

831. fundur
23. október 2017 kl. 09:00 - 16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Forstöðumenn komu til fundar bæjarráðs og gerðu grein fyrir fjárhagsrömmum og fjárþörf málaflokka/deilda á árinu 2018.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 37
Málsnúmer 1710007F
Ragnhildur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 32
Málsnúmer 1709015F
Bæjarráð fagnar ákvörðun menningarmálanefndar að halda opinn fund um ástand og framtíð Akureyjar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Umsókn um byggingarleyfi, Hafnarbraut 38
Málsnúmer 201709464
Erindi frá lóðarhafa Hafnarbrautar 38 í framhaldi af fundi með bæjarráði 16. október s.l.
Lagðar fram tillögur frá lóðarhöfum að breytingum sem koma til móts við umræður á fundi með bæjarráði 16. október sl. og í bókun skipulagsnefndar frá 4. október sl.
Tillögur snúa að því að fallið er frá byggingarreit á baklóð B2 og að á hluta af því svæði verði útbúin bílastæði. Frekari rökstuðningur er fyrir beiðni um breikkun byggingarreits um 1 metra og útskýringamyndir sem sýna áhrif skuggavarps. Heildar byggingarmagn er minnkað með þessari tillögu lóðarhafa.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og telur það sýna vilja lóðarhafa til að koma til móts við ábendingar sem fram hafa komið.
Í ljósi þróunar málsins fellur bæjarráð frá skilafresti teikninga sem settur var á fundi bæjarráðs 16. október. Bæjarráð telur að þær tillögur sem koma fram í framlögðum gögnum geti rúmast innan óverulegra breytinga á gildandi deiliskipulagi. Bæjarráð vísar málinu til meðferðar hjá skipulagsnefnd.
5.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Framkvæmdaráætlun Velferðarráðuneytis um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2022 er komin fram. Hjúkrunarheimili á Höfn er hluti af þeirri áætlun. Í áætluninni er miðað við lágmarksþátttöku hlutaðeigandi sveitarfélaga í framkvæmdarkostnaði, þ.e. 15% á móti 85% kostnaði ríkisjóðs.
Bæjarráð fagnar því að bygging nýs hjúkrunarheimilis sé inni í nýútkominni framkvæmdaáætlun og lýsir sig reiðubúið til samningagerðar svo undirbúningur og hönnun byggingar geti hafist strax á þessu ári. Bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSU Hornafirði falið að ræða við Velferðarráðuneytið um framgang málsins.
6.
Starfsmannamál
Málsnúmer 201710071
Jón Garðar Jónsson ný ráðinn verkefnastjóri hefur sagt upp starfi sínu.
Bæjarstjóri fór yfir starfsmannamál. Verkefnastjóri byggingarmála hefur sagt upp starfi sínu og lætur af störfum um næstu mánaðamót.
Bæjarráð felur bæjarstóra að auglýsa starf byggingarfulltrúa og sérfræðings á tæknisvið laust til umsóknar.
7.
Samstarfssamningur: framlenging
Málsnúmer 201710059
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku í samstarfssamningi með markaðsstofu Suðurlands.
8.
Humarhátíð 2017
Málsnúmer 201709081
Bæjarstjóra falið að ræða við UMF Sindra um stöðuna og mögulega framlengingu samnings.
9.
Samningur um tölvuþjónustu
Málsnúmer 201709145
Samningur vegna hýsingar og reksturs tölvukerfis lagður fram. Umræður um nærþjónustu sem ekki fellur undir samninginn.
Bæjarráð samþykkir samninginn.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa nýtt rekstrarleyfi fyrir Ottó B. Ólafsson
Málsnúmer 201709345
Erindi dags. 21.02 2017 lagt fram, frá Sýslumanninum á Suðurlandi rekstar- og áfengisleyfi.
Unnið er að breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 þar sem starfsemi sem fram kemur í umsókn er leyfð. Vinna við aðalskipulagsbreytingu er komin það langt í ferli að sjá á fyrir endann á vinnunni. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
11.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis Litla- Hof
Málsnúmer 201709443
Erindi dags. 26. 07 2017 frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er efir umsögn vegna rekstarleyfis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
12.
Umsögn um útgáfu leyfis- rekstrarleyfi Smyrlabjörg
Málsnúmer 201709375
Erindi dags. 22.08 2017 lagt fram, frá Sýslumanninum á Suðurlandi rekstar- og áfengisleyfi fyrir Smyrlabjörg. Bráðabyrgðarleyfi var gefið út af sýslumanni þann 4. september.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
13.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfi Hagi 2
Málsnúmer 201709146
Erindi dags. 06.07 2017 frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis vegna reksturs gististaðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
14.
Breiðabólstaður 2 Gerði: rekstur gististaðar: umsögn um útgáfu leyfa
Málsnúmer 201709229
Erindi dags. 13.07 20174 frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis gististaðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa: Dynjandi
Málsnúmer 201709554
Erindi dags 27. 09 2017 frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn v. rekstarleyfis vegna reksturs gististaðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
16.
Umsögn um rekstrarleyfi Víkurbraut 2
Málsnúmer 201710052
Erindi dags. 13.10 2017 frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi vegna reksturs gististaðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
17.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2017
Málsnúmer 201709222
Fundargerð nr.87 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.