Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

833. fundur
6. nóvember 2017 kl. 16:00 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Tómstundastyrkur: Erindi frá Umf. Sindra
Málsnúmer 201710090
Samkvæmt reglum sveitarfélagsins um tómstundastyrk er honum úthlutað til barna og ráðstöfunarréttur hans er hjá foreldrum/forráðamönnum. Því er ekki hægt að framselja styrkinn til einstakra félaga. Þann 1. janúar 2018 verður Nora kerfið komið í fulla virkni og þar geta foreldrar ráðstafað styrknum á rafrænan hátt. Bæjarráð fagnar frumkvæði UMF Sindra að hvetja íbúa til að nýta tómstundastyrkinn með dreifibréfi á mörgum tungumálum. Bæjarráð bendir einnig á að þýða má lykilhugtök í Nora kerfinu til að auðvelda notkun.
2.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Lagt fram til kynningar.
3.
Dvalartími og ferðaleiðir við Jökulsárlón
Málsnúmer 201711012
Erindi lagt fram frá Rögnvaldi Ólafssyni um uppsetningu á mælitækjum við Jökulsárlón sem mæla dvalartíma ferðamanna á svæðinu. Gögnin munu nýtast til greiningar og skipulagsvinnu í sveitarfélaginu. Að auki gætu gögnin nýst fleiri aðilum eins og Vegagerðinni og Vatnajökulsþjóðgarði. Bæjarráð er jákvætt fyrir kostnaðarþátttöku að fjárhæð 525 þkr. vegna uppsetningar í samræmi við framlagt erindi sem tekið verður af óráðstöfuðu. Bæjarráð felur bæjarstjóra og málsaðila að afla frekari fjárstyrkja til verkefnisins.
4.
Sala á tækjum: Áhaldahús
Málsnúmer 201709549
Bæjarráð heimilar sölu á tækjum í Áhaldahúsi sem ekki eru lengur í notkun. Bæjarráð heimilar kaup á skotbómulyftara ef söluverðmæti tækja dugir til.
5.
Lóðarumsókn: Heppuvegur 2b
Málsnúmer 201710026
Þar sem bæjarráð hefur nýlega úthlutað afnotarétti til loka september 2018 og í ljósi staðsetningar lóðar óskar bæjarráð eftir samtali við umsækjendur. Bæjarstjóra falið að boða umsækjendur á fund bæjarráðs nk. mánudag.
6.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Farið yfir drög að framkvæmdaáætlun 2018. Unnið verður áfram að forgangsröðun verkefna.
7.
Endurskoðun reikninga sveitarfélagsins samningur
Málsnúmer 201711011
Lögð fram tillaga að endurnýjun á samningi við KPMG um endurskoðun á reikningum sveitarfélagsisns og tengdra aðila næstu fimm ár. Núgildandi samningur gildir í eitt ár til viðbótar með framlengingarákvæði til tveggja ára. Bæjarráð samþykkir að endurnýja samning við KPMG.
8.
Áskorun um að hefja byggingu við Hofgarð
Málsnúmer 201711001
Erindi 109 íbúa í Öræfasveit dagsett 20. október til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar um að hefja strax byggingu húsnæðis fyrir starfsmenn Leik- og grunnskólans í Hofgarði.
Bæjarráð þakkar erindið. Í framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins 2018 eru áform um byggingu íbúðarhúsnæðis í Öræfum fyrir starfsmenn leik- og grunnskólans í Hofgarði.
9.
Frekari gögn vegna erindis Ice Lagoon ehf.
Málsnúmer 201711004
Bæjarráð óskar eftir að Árni Helgason hjá Cato lögmönnum geri drög að svari til Samkeppniseftirlitsins.
10.
Ósk um heimild til framsals samnings
Málsnúmer 201711002
Bæjarráð heimilar framsal á samningi í samræmi við 9. grein samnings en bendir á að gildistími samnings er til 1. desember 2018 skv. 6. grein samningsins.
11.
Lýðræði og þátttaka
Málsnúmer 201711010
Starfsmönnum falið að kalla eftir formlegu tilboði. Tímasetning námskeiðs væri í byrjun árs 2018.
12.
Eldvarnarúttekt: Áhaldahús
Málsnúmer 201711007
Lagt fram til upplýsinga. Bæjarstjóri upplýsti að starfsmenn vinni að úrbótum.
13.
Landsmót unglingadeilda 2018
Málsnúmer 201711003
Bæjarráð heimilar afnot af Hofgarði og útisvæði dagana 8.-10. júní 2018.
14.
Greiðslu kostnaður við alþingiskosningar 28.október 2017
Málsnúmer 201710096
Erindi Dómsmálaráðuneytisins dagsett 30. október. Tilkynning um greiðslur til sveitarfélaga vegna alþingiskostninga 28. október 2017. Greitt verður fyrir hvern kjósanda 646 krónur og fyrir hvern kjörstað 481.000 krónur.
Lagt fram til kynningar.