Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

836. fundur
27. nóvember 2017 kl. 13:00 - 15:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 34
Málsnúmer 1711011F
Árdís fór yfir fundargerðina. Umræður um fjallskilasamþykkt. Árdís fór yfir stöðu vinnu við gerð nýrrar fjallskilasamþykktar. Ný fjallskilasamþykkt verður lögð fram í bæjarstjórn í apríl 2018.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 33
Málsnúmer 1711013F
Matthildur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 34
Málsnúmer 1710023F
Eyrún fór yfir fundargerðina. Umræður um húsnæðisþörf safnkosta sveitarfélagsins. Umræður um Akyrey og niðurstöðu íbúafundar. Ljóst er að skipið er ónýtt en mikilvægt er að varðveita söguna. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna undirbúningsvinnu vegna förgunar Akureyjar og óskar eftir ástandsskýrslu og söguskráningu.
Fundargerð samþykkt.
4.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017-2018
Málsnúmer 201709520
Frestur til að skila inn óskum um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta er til 20. desember. Bæjarráð felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að útbúa erindi vegna óska um sérreglur og leggja fram í bæjarráði.
5.
Gjaldskrá sundlaugar
Málsnúmer 201710058
Gjaldskrá Sundlaugar lögð fram þar sem gert er ráð fyrir hækkun um 50 kr. á stakan miða og fjölskyldumiða á 2.000 kr. Bæjarráð samþykkir gjaldskrána.
6.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Bæjarráð samþykkir að unnið verði út frá framlagðri stofnbúnaðaráætlun fyrir leikskólann Sjónarhól.
7.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2018
Málsnúmer 201709538
Lagt fram til kynningar.
8.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Málsnúmer 201710033
Gunnlaugur kynnti drög að malbikunaráætlun 2018. Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við malbikunaraðila um að auglýsa fyrirhugaða komu malbikunarflokks.
9.
Íbúakönnun: framkvæmdir 2018
Málsnúmer 201711065
Tillögur sem fram komu við skoðanakönnun á heimasíðu sveitarfélagsins nóvember 2017
Bæjarráð þakkar innsendar tillögur sem nýtast munu í áætlanagerð.
10.
Refasamningur og uppgjör 2017-2019
11.
Náttúrustofa Suðausturlands: Samningur
Málsnúmer 201709543
Erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytis dagsett 14. nóvember. Óskað er eftir að samningur sem rennur út við árslok 2017 vegna reksturs Náttúrustofu Suðausturlands verði framlengdur um eitt ár.
Bæjarráð samþykkir framlengingu samnings miðað við óbreyttar forsendur í eitt ár.