Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

837. fundur
4. desember 2017 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 201
Málsnúmer 1711018F
Vignir fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 202
Málsnúmer 1711015F
Vignir fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
3.
Útboð: Fráveita í Nesjahverfi
Málsnúmer 201710054
Fjögur tilboð bárust í verkið Fráveita í Nesjahverfi.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 37.540.000 kr.
Jökulfell ehf. 31.491.903 kr.
Rósaberg ehf. 42.835.040 kr.
Rósaberg ehf. frávikstilboð 35.193.540 kr.
JP-Vélar 29.216.935 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er 78% af kostnaðaráætlun, að uppfylltum kröfum í kafla 0 í útboðsgögnum.
4.
Útboð: Fráveita 2. áfangi á Höfn
Málsnúmer 201710053
Eitt tilboð barst í verkið Fráveita 2. áfangi Höfn.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 88.145.000 kr.
Rósaberg ehf. 81.264.419 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er 92% af kostnaðaráætlun, að uppfylltum kröfum í kafla 0 í útboðsgögnum.
5.
Útboð ljósleiðaralagningar Mýrum, Nesjum
Málsnúmer 201709511
Þrjú tilboð bárust í verkið ljósleiðaralagning Mýrum og Nesjum.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 75.901.000 kr.
Þjótandi ehf. 67.110.000 kr.
Rósaberg ehf. 53.686.424 kr.
Rósaberg frávikstilboð 43.631.989 kr.
Öll verð eru án virðisaukaskatts.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er 57% af kostnaðaráætlun, að uppfylltum kröfum í kafla 0 í útboðsgögnum.
6.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Málsnúmer 201710033
Farið yfir samantekt tæknideildar á malbikunarþörf í sveitarfélaginu.
7.
Ráðning byggingarfulltrúa
Málsnúmer 201711061
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöður auglýsingar um starf byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Starfsmenn vinna áfram að málinu.
8.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöðu fundar í Velferðarráðuneytinu 1. desember sl.
Bæjarráð leggur til að í framkvæmdaáætlun 2018-2020 verði gert ráð fyrir 150 mkr. á ári í byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Með þessu er sveitarfélagið að leggja sitt framlag til verkefnisins í upphafi framkvæmda.
9.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Farið yfir stofnbúnaðaráætlun leikskólans. Bæjarráð samþykkir hækkun á fjárhagsramma leikskólans 2018 í samræmi við framlagða stofnbúnaðaráætlun.
Umræður um styrki til list- og nýsköpunar.
10.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2018
Málsnúmer 201709538
Bæjarráð samþykkir að hækka tekjumörk um 25% í reglum um afslátt af fasteignaskatti til öryrkja og ellilífeyrisþega.
11.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Málsnúmer 201712006
Lagt fram til kynningar.
12.
Í skugga valdsins
Málsnúmer 201712002
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hvetur til að tekið verði þátt í umræðu um kynferðisofbeldi og áreiti og hvernig koma megi í veg fyrir slíkt athæfi á vettvangi stjórnmála og á vinnustöðum sveitarfélaga.
Bæjarráð felur félagsmálanefnd að yfirfara eineltisstefnu og aðrar stefnur og áætlanir sveitarfélagsins sem fjalla um ofbeldi og kynferðislega áreitni.