Bæjarráð Hornafjarðar
838. fundur
11. desember 2017
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 36
Farið yfir fundargerð. Umræður um sorpmál.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 35
Farið yfir fundargerð. Umræður um breytingu á deiliskipulagi HSSA og aðalskipulagsbreytingu vegna virkjunar í Birnudal.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Umferðaröryggisáætlun 2017
Farið yfir umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins. Bæjarráð telur rétt að útbúið verði kort sem sýnir flokkun gatna. Umferðaröryggisáætlun verður lögð fyrir bæjarstjórn í janúar 2018.
4.
Landskipti Hólanes
Erindi landeigenda Hóla Nesjum vegna landaskipta. Erindi dagsett 7. nóvemberr 2017 óskað er eftir að skipta lóð út úr jörðinni Hólum landnúmer 159498. Um er að ræða 71,9ha lands sem nefnist Hólanes.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun viðkomandi lóðar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Hreindýraarður 2017
Erindi Umhverfisstofnunar dagsett 4. desember 2017. Tilkynning um drög að hreindýraarði fyrir árið 2017 á ágangssvæði/jarðir í sveitarfélaginu. Samkvæmt reglugerð liggja drögin frammi til skoðunar 4. til 15. desember.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2018
Farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið milli umræðna og forgangsröðun framkvæmda rædd.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7.
Kaup Ungmennafélagsins Sindra á félagshúsnæði
Bæjarráð samþykkir að greiða 35 mkr í stofnkostnað Hafnarbraut 15 og eignast hlutdeild í húsinu í samræmi við það. Kvöð er um að stofnað verði húsfélag og andvirði 2% af stofnvirði verði greitt í viðhaldssjóð á hverju ári sem komi af tekjum hússins. UMF Sindri sér um allan rekstur hússins og hefur húsið til afnota samkvæmt samningi þar um.
8.
Almannavarnir: framkvæmd, áhættumat, samstarf
Lagt fram til kynningar.
9.
Þórbergssetur: stjórn, tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins
Bæjarráð tilnefnir Eyrúnu Helgu Ævarsdóttur, forstöðumann Menningarmiðstöðvar, og Halldóru Jónsdóttur sem varamann.