Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

839. fundur
18. desember 2017 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 291
Málsnúmer 1712010F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Vöruhönnunaráfangi: Aðstaða
Málsnúmer 201712040
Erindi frá Listaháskóla Íslands um samvinnu vegna vöruhönnunaráfanga Hugmyndin er að kenna þennan áfanga í sveitarfélaginu á vorönn 2018.
Bæjarráð samþykkir að styðja við verkefnið með því að leggja til húsnæði sveitarfélagsins og aðstöðu í Nýheimum. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar verði tengiliður við fulltrúa Listaháskólans. Áhugavert væri ef afrakstur áfangans yrði kynntur hér í sveitarfélaginu.
3.
Uppbygging á grunni deiliskipulags útbæ Höfn - Viljayfirlýsing
Málsnúmer 201709470
Erindi frá Heilsuvernd dagsett 14. desember. Þar kemur fram að unnið er að hönnun hugmyndar um uppbyggingu jöklasýningar og hótels. Óskað er eftir framlengingu á viljayfirlýsingu til loka janúar 2018.
Bæjarráð samþykkir að framlengja viljayfirlýsingu út janúar 2018. Einnig vill bæjarráð benda á að þær hugmyndir sem nú eru lagðar fram falla ekki að gildandi deiliskipulagi. Með samþykki framlengingar á viljayfirlýsingu er ekki tekin afstaða til þeirra hugmynda sem lagðar eru fram í erindinu.
4.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017-2018
Málsnúmer 201709520
Bæjarráð fól atvinnu- og ferðamálafulltrúa á fundi 27.11.2017 að útbúa drög að ósk um sérreglur vegna byggðakvóta. Sveitarfélaginu var úthlutað 244 þorskígildistonn.
Árdís gerði grein fyrir mögulegum útfærslum á sérreglum. Bæjarráð felur starfsmönnum að senda inn ósk um sérreglur þar sem 20% af byggðakvóta geti nýst til vinnslu og sölu innan sveitarfélagsins. Með þessu verði komið til móts við eftirspurn um aukið aðgengi að ferskum sjávarafurðum.
5.
vegna úthlutunar byggðarkvóta
Málsnúmer 1712037
Erindi frá smábátafélaginu Hrollaugi ódagsett. Ósk um að sveitarfélagið óski eftir breytingum á reglum um úthlutun byggðakvóta. Þannig að 50% af byggðakvóta verði úthlutað á báta undir 30 brl. og að strandveiðikvóti teljist sem viðmið móti byggðakvóta.
Samkvæmt upplýsingum bæjarráðs frá Fiskistofu er strandveiðikvóti mótframlag með umsókn um byggðakvóta. Bæjarráð er ekki tilbúið að óska eftir sérreglum þar sem 50% af byggðakvóta yrði úthlutað til báta undir 30 brl. Bæjarráð felur starfsmönnum að óska eftir að 15% af byggðakvóta verði skipt jafnt á milli báta sem uppfylla skilyrði um úthlutun byggðakvóta.
6.
Hringvegur um Hornafjarðarfljót landaskipti
Málsnúmer 201712023
Erindi Egils Marteins Benediktssonar dagsett 7. desember.
Bæjarráð hefur ekki áður fjallað formlega um kaup á jörðinni Dilksnesi, landnúmer 173417, eða makaskiptum á því landi. Sveitarfélagið þarf að horfa í þá staðreynd að aðrir jarðeigendur á svæðinu geti verið í sambærilegri aðstöðu. Ef sveitarfélagið samþykkti skipti á jörðum þá gætu fleiri eigendur óskað eftir sambærilegum skiptum. Bæjarráð hafnar því fyrirliggjandi beiðni um makaskipti á landi.
Land í eigu sveitarfélagsins er af skornum skammti og því óraunhæft að ætla að sveitarfélagið geti gætt jafnræðis gagnvart öðrum eigendum í sambærilegum skiptum. Bæjarráð vill minna á að málið er á forræði Vegagerðarinnar.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa
Málsnúmer 201711082
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. nóvember. Ósk um umsögn við útgáfu leyfis tímabundið áfengisleyfi Kartöfluhúsið ehf. að Heppuvegi 5 þann 1.1.2018 frá kl 01:00 til 04:00.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Hafið
Málsnúmer 201711081
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. nóvember. Ósk um umsögn við útgáfu leyfis tímabundið áfengisleyfi Kartöfluhúsið ehf. að Heppuvegi 5 þann 27.12.2017 frá kl 00:01 til 03:00.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
9.
Fundargerðir HAUST 2017
Málsnúmer 201709053
Fundargerði 138 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir SASS 2017
Málsnúmer 201709051
Fundargerð stjórnar SASS nr. 526 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.