Bæjarráð Hornafjarðar
840. fundur
3. janúar 2018
kl.
11:00
-
13:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 40
Í tengslum við umræður um skólaakstur var umræða um almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins og möguleika á að efla þær. Bæjarráð óskar eftir umræðu og skoðun atvinnumálanefndar á þörfum atvinnulífsins í dreifbýli með almenningssamgöngur í huga.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 34
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 35
Farið yfir fundargerð.
Fudargerð samþykkt.
Fudargerð samþykkt.
4.
Menningarmálanefnd - 35
Fundargerð samþykkt.
5.
Íþróttamiðstöð: endurbætur
Gunnar Ingi gerði grein fyrir stöðu undirbúnings endurbóta á gólfi í íþróttahúsi og efnisvali. Leitað var eftir verðum hjá fjórum aðilum og fimm tilboð bárust: Egill Árnason 13.476.726 kr. Á.Óskarsson 12.276.149 kr. Altís 14.262.726 kr. Sport tæki tilboð 1 kr. 16.213.489 og tilboð 2 kr. 16.984.619. Eftir yfirferð forstöðumanns íþróttamannvirkja og fræðslunefndar er það lagt til að tilboði 1 frá Sport tækjum verði tekið þar sem það er talið henta best út frá notkun hússins.
Í fjárhagsáætlun 2018 er gert ráð fyrir 14 mkr. Lagfæra þarf hurð á austurgafli og koma upp rakastýringu í húsinu til að hægt verði að setja parketgólf. Heildarkostnaður við verkið með þessum lagfæringum er áætlaður 18,5 mkr.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Sport tæki um tilboð 1. Aukafjárveiting verði tekin af óráðstöfuðu og hefur því ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu.
Í fjárhagsáætlun 2018 er gert ráð fyrir 14 mkr. Lagfæra þarf hurð á austurgafli og koma upp rakastýringu í húsinu til að hægt verði að setja parketgólf. Heildarkostnaður við verkið með þessum lagfæringum er áætlaður 18,5 mkr.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Sport tæki um tilboð 1. Aukafjárveiting verði tekin af óráðstöfuðu og hefur því ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu.
6.
Endurheimt og varðveisla votlendis á Íslandi
Vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
7.
Húsnæði Sláturfélagsins Búa - Vestur hluti sláturhúss
Björn Ingi gerði grein fyrir hugmyndum að þriggja ára tilraunaverkefni fyrir matarsmiðjuna á Höfn. Vestur hluti húsnæðis Sláturfélagsins Búa stendur til boða fyrir starfsemina. Til að tryggja framgang verkefnisins þarf sveitarfélagið að leggja eitthvert fjármagn. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
8.
Hús í landi Hafnarness: Útlitsbreyting
Björn Ingi gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á húsinu. Umræður um nýtingu hússins eftir að kvikmyndaverkefni lýkur, t.d. undir byggðasafn sveitarfélagsins.
9.
Ósk um umsögn um að Brunnavellir 1 verði gerðir að lögbýli
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við óskinni.
10.
Umsögn um frumvarp til laga: félagsþjónusta mál 27
Vísað til félagsmálastjóra.
11.
Umsögn um frumvarp til laga: þjónusta við fatlað fólk mál 26
Vísað til félagsmálastjóra.
12.
Umsögn um frumvarp til laga: kosningaraldur mál 40
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerðir SASS 2017
Fundargerð stjórnar nr.527 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
14.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 855 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.