Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

841. fundur
8. janúar 2018 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 36
Málsnúmer 1712005F
Farið yfir fundargerð.


2. 201709033 - Fyrirspurn um skipulag Jökulsárlón: Bílastæði til bráðabirgða og endurskoðun gildandi deiliskipulags.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla upplýsinga um hvar vinna við breytingu á gildandi deiliskipulagi er stödd og hvar sé gert ráð fyrir almennri þyrluumferð við Jökulsárlón.

Fundargerð samþykkt.
2.
Umferðaröryggisáætlun 2017
Málsnúmer 201709426
Bæjarráð óskaði eftir að hafa kort í áætluninni sem sýnir hvaða götur verða með 30 km. hámarkshraða.
Farið yfir umferðaröryggisáætlun. Umræður um hraðatakmarkanir og með hvaða móti hægt er að lækka hraða í íbúagötum í 30 km/klst. en hækka annars staðar í 50 km/klst. Málið er áfram í vinnslu hjá umhverfisnefnd.
3.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Málsnúmer 201712006
Tölvupóstur frá framkvæmdarstjóra Brú lífeyrissjóðs dagsettur 4. janúar 2018. Drög að uppgjöri fyrir sveitarfélagið vegna breytinga á A deildinni. Komið hefur verið á framfæri athugasemdum við hve stuttur tími gefin er til efnislegrar skoðunar og meðferðar á þessu stóra og viðamikla máli.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu og að búið er að koma á framfæri athugasemdum til sjóðsins. Bæjarráð gerir athugasemd við hve skammur frestur er gefinn til að fara yfir málið auk þess sem skortur er á gögnum til að átta sig á forsendum útreikninga.
4.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
úthlutun stofnbúnaðar
Tillaga að úthlutun stofnbúnaðar lögð fram og rædd.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
5.
Lóðarmsókn: Álaleira 18
Málsnúmer 201712057
Umsókn Kristjáns Arnars Ebenezersonar um lóð að Álaleiru 18 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Lóðarumsókn: Heppuvegur 3
Málsnúmer 201801003
Umsókn Samir Mesetovic um lóð að Heppuvegi 3 lögð fram
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Bæjarráð bendir á að ekki er gert ráð fyrir íbúðabyggð á lóðinni. Málinu vísað til bæjarstjórnar.